Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1986, Blaðsíða 19
og innihald hennar
Verkjalyf Kista 2 Kista 3
Acetýlsalicýltöflur (aspirín) 50x2 50x2
Magnýltöflur 50x2 50x3
Kódimagnýltöflur 50 50x2
Indómethacínstílar 100 mg 5 10
Fortral töflur 30 30
Fortral stungulyf 30 mg 10 10
Acetýlsalicýltöflur og magnýltöflur eru nán-
ast sama lyfið. Þetta er vægt verkjalyf og
bólgueyðandi, en hefur umtalsverðar auka-
verkanir og getur m.a. valdið magasári.
Hinsvegar er til annað lyf, paracetamól, sem er
álika gott verkjalyf, en hefur færri aukaverkan-
ir. Ég vildi heldur hafa það í lyfjakistunum, en
sleppa báðum hinum. Kódímagnýl er talsvert
sterkara verkjalyf og ætti að vera þarna áfram.
Indómethacin er með lika verkun og magnýl,
en er þarna ætlað til að meðhöndla nýrna-
steina. Þeir valda miklum verkjum, og mér
finnst óvíst að þetta lyf dugi nógu vel við
þessu, en stílarnir eru þó ef til vill skárri kostur
en stungulyf, sem margir stýrimenn mundu
veigra sér við að nota.
Fortral er í flokki sterkustu verkjalyfja og
hefur nú verið sett í kisturnar i stað morfins,
sem þvi miður hefur ekki fengið að vera þarna í
friði fyrir eiturlyfjaneytendum og ýmsum
óþjóðalýð. Fortral er ekki eins gott verkjalyf og
morfin, en verður víst að duga. Töflurnar hafa
mun lakari verkun en stungulyfið, en hér kem-
Lyfjakista sem er vel búin hefur aö geyma fjöi-
breytilegt úrval lyfja og margs konar áhöid.
uraftur upp spurningin um hæfni skipstjórnar-
manna til að gefa sprautu, sem er að vísu ekki
mikið vandaverk, en tilheyrir bara ekki hinum
daglegu störfum á sjó.
Staðdeyfilyf Kista 2 Kista 3
Etýlklóríð 100 ml
Ciloprine eyrna- dropar 12g
Tetracain augn- dropar 10 ml x 2
Tanndropar 10 g 10 g
Lidocainlausn meö adrenalíni 20 ml x 2
Lidocainlausn án adrenalíns 20 ml x 2
Xylocainhlaup 20 ml 20 ml
Etýlklóríö er notað til að frysta húð, áður en
stungið er á ígerðum. Viö óvarlega notkun geta
komið kalsár. Auk þess eru þessar aðgerðir
sjaldgæfar til sjós og deyfing raunar ekki alveg
nauðsynleg. Þessu efni er því best að sleppa.
Tetracain augndropar eru notaðir, ef ná þarf
korni úr auga, og einnig má nota þá við raf-
suðublindu. Sjálfsagt er að hafa þetta i kist-
unni, en eitt glas er þó nægilegt. Einnig er rétt
að hafa þetta lyf I kistu nr 2.
Tanndropar gera ekki kraftaverk, en mega
þó vera í kistunum, enda meðferð þeirra ein-
föld og veldur ekki ruglingi.
Lidocaín stungulyf er notað til að deyfa, þeg-
ar sár eru saumuð. Adrenalin er sett í það til að
stilla blóðrás, en hefur ekki afgerandi þýðingu,
og sagt er að þaö sé varasamt að deyfa t.d.
heilan fingur með þvi vegna hættu á drepi.
Mörg dæmi eru um listilegt handbragð stýri-
manna við þessar aðgerðir, og sjálfsagt er að
hafa möguleika á að sauma sár um borð í
þessum skipum, þó þetta sé sjaldgæft. Ég tel
að nóg væri að hafa lídócain án adrenalíns i
kistunni, og það ætti lika að vera i kistu 2. Því
að merkilegt nokk eru áhöld til að sauma sár i
þeirri kistu, en hinsvegar er ekkert til að deyfa
með, ekki einu sinni viskí.
Xylocaínhlaup er notað til að deyfa þvagrás,
þegar þvagleggur er settur upp, og þetta þarf
aö vera i kistunni.
Ciloprine eyrnadropar eru ætlaðir til að
deyfa hlustarverk, en eru heldur gagnslitlir og
mætti þvi sleppa þeim.
VÍKINGUR 19