Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1986, Page 60

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1986, Page 60
Stofnmæling botnfisk ÓlafurK. Pálsson fiskifræðingur Björn Æ. Steinarsson fiskifræðingur Einar Jónsson fiskifræðingur 60 VÍKINGUR I marsmánuði 1986 var í annað sinn farinn leiðangur Hafrannsóknastofnunar á 5 togurum til stofnmælingar á botnfiskum. Grein um það verkefni og niðurstöður birtist hér í blaðinu 1985 (11.—12. tbl.): „Stofnmæling botnfiska á íslandsmiðum 1985“. Ekki verður því fjölyrt hér um forsögu, undirbúning og skipulagningu verk- efnisins, heldur vísað í fyrrnefnda grein, varðandi þá þætti. Gagnasöfnun Leiðangurinn fór fram dag- ana 5.-23. mars s.l. vetur (1986). Þrír japönsku togar- anna voru þeir sömu og i fyrra, þ.e. Arnar HU 1, Páll Pálsson IS 102 og Vest- mannaey V E 54. i stað Drangeyjar SK 1 kom nú Brettingur NS 50 og í stað Hoffells SU 80 kom nú Ljósa- fell SU 70. Veður var rysjótt hjá flestum skipunum. Alls voru teknar 586 stöðvar (sór. 1. mynd) á 72 úthaldsdögum sem gerir um 8 stöðvar á sól- arhring að jafnaði hjá hverju skipi sem er mjög hliðstætt og árið áður. Gagnasöfnunin beindist að öllum helstu botnlægum fiskitegundum við landið, 25 alls. Fiskarnir voru lengdar- mældir og teknar kvarnir til aldursgreiningar. Aðrar lif- fræðilegar athuganir svo sem kyngreining og annað voru og framkvæmdar á hluta afl- ans. Á hverri togstöð var skráður fjöldi upplýsinga svo sem um sjávarhita og veður- far auk almennra upplýsinga um togið (stefnu, dýpi, stað- setningu o.fl.). Allar mælingar voru skráðar jafnharðan inn á tölvu um borð í skipunum. Niðurstöður i þessari grein verður lýst almennum liffræöilegum nið- urstöðum um helstu fiski- stofna sem voru rannsakaðir, þ.e. þorsk, ýsu, karfa, steinþit og skrápflúru. Ennfremur verður gerö grein fyrir niöur- stöðum varðandi stofnmat þessara tegunda. I hliðstæðri grein hér i blaðinu 1985 um fyrstu stofnmælinguna sem fram fór á togurum voru nið- urstöður um ufsa hafðar með. Þótt i mælingunni 1986 hafi fengist hærri meðalafli ein- kennist ufsaaflinn í báðum þessum stofnmælingum af miklum sveiflum. Mæling á stofninum með botnvörpu virðist því næsta vonlaus enda fiskurinn oft i torfum og meira og minna uppi i sjó. Niðurstöðum um ufsa er þvi sleppt í þessari grein. Umhverfisþættir Hitastig sjávar við botn var mælt á 384 stöðvum í leið- angrinum og yfirborðshiti á 523 stöðvum eins og sést í töflunni hér að neðan þar sem meðalhiti er tekinn sam- an eftir svæðum skv. mynd 1. Nákvæmni þessara mælinga er um það bil 0,1 gráða á Celsíus. Botnhiti sjávar reyndist óvenju hár eða svip- aöurog i leiðangrinum 1985, en þó heldur lægri en i fyrra á austurmiðum. Hitastig á Fær- eyjahrygg var hins vegar mun hærra í mars 1986 heldur en ásamatima 1985. Eins og áður sagði var veð- ur fremur slæmt hjá öllum skipunum i leiöangrinum 1986. I töflunni hér að neðan sést veðurlag (vindhraði) á togstöðvunum, þ.e. tiðnihlut- fall (%) vindhraða í leiðöngr- unum1985 og 1986. Vindhraöi Tíöni- (hnútar hlutfall á klst.) (%) 1986 1985 3-5 8 18 5-10 23 29 10-15 25 21 15-20 13 15 20-25 16 9 25-30 5 2 30-35 9 5 35-40 1 1 Aldursdreifing Aldursdreifing, þ.e. skipting fiskistofns i aldursflokka, er sýnd annars vegar með tilliti til fjölda fiska í aldursflokki eftir svæðum (sþr. mynd 1), og hins vegar með tilliti til þyngdar fiska í aldursflokki. Stærð uppvaxandi árganga er þest að meta út frá fjölda fiska, þar sem smáfiskurinn vegur litið i þunga. Hafsvæöi Botnhiti í C° Yfirborðshiti í C° 1986 1985 1986 1985 Suðurmið 5,8 5,7 7,2 6,8 Vesturmiö 4,7 4,5 6,2 6,0 Norðvesturmiö 4,7 4,4 5,3 5,0 Noröurmiö 3,3 3,4 3,6 3,3 Austurmið 1,8 2,5 2,9 2,7 Rósagarður 3,0 0,7 7,3 3,3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.