Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2002, Side 4
Vestmannaeyingur
á villigötum
Fyrir skömma vippaði sér í sviðsljósið Sigurgeir Brynjar Krist-
geirsson framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmanna-
eyjum og fór mikinn. í stuttu máli fólst í hans málflutningi áfell-
isdómur yfir eigin samtökum, það er að segja LÍÚ. Fram kom að
honum þykir skítt að geta ekki ákveðið fiskverðið algörlega sjálf-
ur með „samningum” við sínar áhafnir. Fullyrti hann ennfremur
að ef ekkert væri að gert þá liði ekki á löngu þar til öll fisk-
vinnsla í landinu yrði komin út á sjó.
Pessi yfirlýsing er allsérstæð fyrir þá sök að á landsvísu er
þessu algjörlega öfugt farið, sem sagt myljandi uppgangur í land-
vinnslunni. Svo rammt kveður að þessu að þau fyrirtæki sem eru
bæði í sjó- og landvinnslu vilja helst ekki að frystiskipin komi
nálægt hefðbundinni flakavinnslu þar sem hagkvæmni land-
vinnslunnar er afgerandi um þessar mundir. Segja má því að
frystiskipaflotinn eigi undir högg að sækja og algjör öfugmæli að
halda hinu gagnstæða fram.
Þrátt fyrir það sem fullyrt er hér að ofan gerir undirritaður sér
grein fyrir því að ákveðnar greinar innan fiskvinnslunnar falla
ekki að þeirri lýsingu sem áður greinir. Þar er aðallega um þá að
ræða sem eiga mikinn hluta afkomunnar undir þróun á saltfisk-
mörkuðum. Eftir gríðarlegan topp í saltfiskinum er nú veruleg
niðursveifla sem leitt hefur af sér afkomubrest í greininni. Von-
andi hefur þeim sem standa og falla með saltfiskinum tekist að
safna í sarpinn meðan prísarnir voru í hámarki og einnig verður
að gera sér vonir um að saltfiskmarkaðirnir braggist sem fyrst.
Ég er persónulega sammála Sigurgeiri í því að verðmyndun á
fiski er ekki í þeim farvegi sem líklegur er til farsælla fausna í
framtíðinni. Ég er tilbúinn til að ræða og reyna að finna betri að-
ferðir sem líklegri eru til að jafnvægi og friður haldist innan
sjávarútvegsins. Þar eru undir allar aðferðir aðrar en þær að út-
gerð semji beint við sína sjómenn sem undantekningalítið eru
meira eða minna undir hælnum á viðsemjandanum. Talandi urn
að frystitogarar séu að sauma að saltfiskvinnslunni finnst mér
ekki fráleitt að ræða við saltfiskframleiðendur um að áhafnir
skipa sem landa afla til saltfiskvinnslu fái sanngjarnan hlut af
endanlegu afurðaverði framleiðslunnar. Þá eru menn í öllu falli
komnir út í sömu aðferðafræði og notuð er á frystiskipum og
verða að kenna öðru um en fiskverði ef illa gengur. Afkoma sjó-
manna og útgerða væri þá samofin og um leið hvatning fyrir
báða aðila til vandaðra vinnubragða. Minn heimildamaður í Eyj-
um fullyrðir að þessi ágæti framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar-
innar sé búinn að gera marga góða hluti síðan hann tók við erf-
iðu búi. Ég óska honum velfarnaðar og skora á hann að leggjast
undir feld og koma helst ekki undan honum aftur fyrr en hann
hefur fundið lausn sem dugir í verðmyndunarmálum.
Árni Bjarnason
Útgcfandi: Farmanna- og fiskiniannasaniband ísJands,
Borgartúni 18. 105 Rcykjavík.
Afgreiðsla og áskrift: sími 562 9933
Ritstjóri og ábyrgðarmaóur: Sæmundur Guðvinsson,
sími 868 2159, tictfang sgg@mmcdia,is.
Auglysingastjori: Sigrun Gissurardóttir, sfmi 587 4647
Kilncfnd: Árni Bjarnason, F.iríkur Jónsson, Hilmar Snorrason
Forscti FFSÍ: Arni Bjarnason
Umbrot, filmuvinnsla, prcntun og bókband: Grafík
Aðildarfclóg FFSÍ: FcJag íslcnskra skipstjórnannanna, Skipstjórafclag Norðlcndinga,
Félag íslcnskra loftskeytamanna, Félag bryta. Fclag matrciðslumanna.
Skipstjóra- og stýrimannafélögin: Aldan, Rcylyjavík; Bylgjan, ísafirði; Sindri,
Neskaupstað; Verðandi, Vcstamannaeyjum; Vísir, Suðurncsjum.
BJaðið kemur út fjórum sinnunt á ári.
Forsíðumyndin er af máherki eftir Gunnlaug
Scheving, Sótt á sjóinn,frá árinu 1938
1W JF| SJðMANWA B L A 01 D j
VíKDNTGUR
Til hainitigju
ttteð sjómatitiadaginn!
.......................
6
10-19
20-23
24-28
30-40
43-44
46-50
Umgengni um auðlindir sjávar, grein eftir
Árna Bjarnason forseta FFSÍ
Greinar og fréttir af ýmsum toga
Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur segir
frá þeim þætti íslenskrar myndlistar þar
sem sjómennskan er viðfangsefni lista-
manna
Viðtal við Helga Kristjánsson sem varð
togaraskipstjóri 22 ára gamall. Hann hef-
ur unnið margs konar frumkvöðlastarf í
veiðum sem skipstjóri og síðan útgerðar-
stjóri
Aðild íslands að ESB og íslenskur sjávar-
útvegur. Kafli úr nýrri bók sem fjallar um
íslenskan sjávarútveg og Evrópusam-
bandið
Grein um framferði veiðiþjófa á alþjóð-
legu hafsvæði
Sigling um Netið og Utan úr heimi
52-66
Kafli úr ítarlegri skýrslu þar sem segir frá
staðfestri framkvæmdaáætiun í öryggis-
málum sjófarenda
Sjómannablaðið Víkingur - 4