Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2002, Blaðsíða 61
Markmið:
Að stuðla að auknum forvörnum gegn
slysum og óhöppum til sjós. Að fræðslu-
efni og leiðbeiningar um öryggismál sjó-
farenda sé til á íslensku og sé aðgengilegt
sjómönnum um borð í eigin skipum,
þannig að skipuleg fræðsla geti farið
fram um borð til að viðhalda og efla
þekkingu sjómanna á öryggismálum
þeirra.
Staða mála:
Ymislegt fræðsluefni hefur verið gert,
ett mikið af því er komið til ára sinna, er
úrelt eða ekki hæft til fjölföldunar og
dreifingar. Jafnframt hafa verið gerð drög
að margskonar fræðsluefni sem ekki hef-
Ur tekist að klára vegna skorts á fjár-
rriagni o.fl. Myndbanki sjómanna hefur
yerið óvirkur um árabil og þyrfti að huga
að breytingum á fyrirkomulagi hans og
styrkja sem víðast gerð, útgáfu og dreif-
lngu fræðsluefnis um öryggismál sjófar-
enda.
Abyruð og umsjón með
framkvæmd:
Siglingastofnun felur aðilum að vinna
eða semja um ákveðna verkhluta.
Samstarfsaðilar:
SÍK, LÍÚ, LS, FFSÍ, VSFÍ, SSÍ, Slysa-
varnaskóli sjómanna, Stýrimannaskóli,
Yélskóli, Myndbanki sjómanna, Endur-
rr'enntun vélstjóra, Vinnueftirlit
Aætluð fjármögnun:
Langtímaáætlun styrkir gerð og útgáfu
‘r*ðsluefnis urn:
ð,0 millj. árið 2001.
4,0 millj. árið 2002.
4,0 millj. árið 2003.
Framkvæmd:
1. Gerð verði samantekt á fræðsluefni
sem gefið hefur verið út um öryggis-
mál sjófarenda.
2. Tekið verði saman hvaða efni er hæft
til dreifingar og hvaða efni þyrfti að
útbúa.
3. Ákvarða skal hvaða nýtt fræðsluefni
skuli gert og hverjir skuli vinna hand-
rit og semja um útgáfu.
4. Koina þyrfti sem mestu af góðu
fræðsluefni, myndböndum og prent-
uðu máli, á tölvutækt form til dreif-
ingar á tölvudiskum og á netinu.
5. Semja þyrfti við erlenda framleiðend-
ur 1. flokks fræðsluefnis um þýðingu
efnis á íslensku og dreifingu þess hér
á landi.
6. Semja þarf við íslenska framleiðendur
fræðsluefnis um söfnun, fjölföldun og
dreifingu á efni frá þeim.
Tímasetningar:
Ákvörðun um fræðsluefni sem á að
gera skal liggja fyrir í lok janúar 2002.
Vinna að gerð fræðsluefnis og dreifing
fari fram árin 2002 og 2003.
Framvinda verkefnis:
Mars 2002:
Ákveðið hefur verið að endurgera ým-
islegt eldra fræðsluefni. Jafnframt hefur
verið tekin ákvörðun um að útbúa marg-
víslegt nýtt fræðsluefni um öryggismál
sjófarenda. Petta efni verður aðgengilegt
á sérstakri heimasíðu um öryggismál sjó-
farenda og verður jafnframt dreift til út-
gerða og sjómanna.
Yerkefni:
4.6 Merkingar á hætlusvæðum í skip-
um.
4.7 Viðvörunarspjöld og leiðbeiningar.
Markmið:
Að auka öryggi í skipum með betri
merkingum/viðvörunum um áhættu og
betra aðgengi að leiðbeiningum um ör-
yggistæki og öryggisráðstafanir.
Staða mála:
Víða í skipum leynast hættur sem
nauðsynlegt er að merkja og/eða benda á
til að vekja athygli skipverja á hættunni.
Mikilvægt er að merkja vel öll hættu-
svæði í skipum.
Kröfur um leiðbeiningar um notkun
öryggisbúnaðar í skipum eru ekki upp-
fylltar í öllum tilvikum og þrýsta þarf á
seljendur búnaðar og útgerðir að leið-
beiningarnar séu aðgengilegar fyrir
áhafnir skipa.
Ábyrgð og umsjón með
framkvæmd:
Siglingastofnun hafi forgöngu urn að
hættusvæði í skipum séu merkt, að útbú-
in séu viðeigandi viðvörunarspjöld og að
leiðbeiningar um meðferð öryggistækja
séu aðgengilegar um borð í skipum.
Samstarfsaðilar:
Útgerðir, stéttarfélög sjómanna, LFIG,
Ss, Vinnueftirlit, söluaðilar öryggisbún-
aðar.
Áætluð fjármögnun:
Langtímaáætlun styrki þessi verkefni
um 2 rnillj. af fjárframlagi ársins 2003.
Framkvæmd:
Siglingastofnun skipuleggi aðgerðir til
að bæta úr merkingum og aðgengi á-
hafna skipa að leiðbeiningum, og sér til
þess í samvinnu við málsaðila að merk-
ingar og leiðbeiningar sem vantar séu
gerðar og settar upp í skipurn. Merkingar
verða að þola það álag sem þær verða
Sjómannablaðið Víkingur - 61