Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2002, Blaðsíða 13
Kostnaður við stjórn fiskveiða
Nemur 312
Gísli S. Einarsson bar fram fyrirspurn
1>1 sjávarútvegsráðherra á síðasta þingi
um kostnað við stjórn fiskveiða. Hér á
ehir fara spurningar Gisla og svör Árna
Mathiesen sjávarútvegsráðherra.
1- Hver er heildarkostnaður við eftirlit
með fiskveiðistjórnarkerfinu d drs-
grundvelli?
2- Hvemig skiptist kostnaðurinn eftir út-
gerðarflokkum, sundurliðað eftir skil-
greiningu veiðileyfa? Hversu mörg drs-
verk eru við eftirlit með fiskveiðiflotan-
um
2- Óskað er yfirlits yfir drin 1999-2001.
1. Heildarkostnaður Fiskistofu vegna
veiðieftirlits hefur verið metinn árlega
vegna út reiknings á veiðieftirlitsgjaldi.
Sá kostnaður við starf Fiskistofu sem
Gngöngu snýst um eftirlit með fiskveið-
um hefur verið lagður þar til grundvallar
að fullu og að hluta kostnaður við þá
þætti í rekstri Fiskistofu sem snerta eftir-
litið með óbeinum hætti, t.d. rekstur
tölvudeildar, yfirstjórn og húsnæðis-
kostnaður. Kostnaður við veiðieftirlit á
árunum 1999-2001 samkvæmt þessu
kemur fram í töflunni.
Fjöldi ársverka við eftirlit.
Ár Beint eftirlit Óbeint eftirlit Eftirlit alls
1999 33 ,7 10 ,9 44 ,6
2000 36 ,0 11 ,6 47 ,6
2001 45 ,6 12 ,8 58 ,4
Koslnaður við eftirlit.
Ár Millj. kr.
1999 207 ,4
2000 232 ,1
2001 312 ,1
Kostnaður jókst rnjög milli áranna
2000 og 2001 en það skýrist af ráðningu
tiu nýrra eftirlitsmanna, fimm í septem-
ber 1999 og fimm í janúar 2000. l’ess
skal enn fremur getið að eigendur fiski-
skipa greiða kostnað Fiskistofu af veiði-
eftirliti með veiðieftirlitsgjaldi.
2. Núna er ekki hægt að skipta raun-
kostnaði við eftirlit með veiðunt eftir
skilgreiningum veiðileyfa. Helstu skýr-
ingar þess eru að oft eru eftirlitsmenn
Fiskistofu á ferð um hafnir landsins og
fylgjast í einni og sömu eftirlitsferðinni
með skipurn með mismunandi veiðileyfi.
Ekki er skráð hversu mikill tími eftirlits-
manna fer í að skoða eða fylgjast með
hverju einstöku skipi og væri raunar nær
ógerlegt. Enn fremur getur sama skip
haft mörg mismunandi veiðileyfi og
þyrftu eftirlitsmenn þá að meta hvaða
leyfi skipið er að nota á hverjum tíma.
Fiskistofa vinnur nú að því að leita leiða
til að skipta kostnaði við eftirlit stofnun-
arinnar niður eftir útgerðarflokkum og
munu tillögur liggja fyrir í haust.
3. Við mat á því hversu mörg ársverk
eru unnin við eftirlit með fiskveiðiflotan-
urn var beitt sömu aðferðafræði og við
skiptingu kostnaðar (sbr. 1. lið). í töíl-
unni er gefinn upp fjöldi árs verka við
beint eftirlit, við óbeint eftirlit, þ.e. þar
sem hluti starfs er við eftirlit eða eftirliti
er sinnt óbeint (t.d. hlutdeild í yfir-
stjórn), og loks samtala ársverka.
„SáGLEG ráðgtöf og !
^UPÖNTUNARÞJÓNUSTA
=!ir^nnm-TTrafiq.qh,,rrrrrr^i.i 'i i^'i^on rarEGLEj^gjr^;---------------------
rafmótorar - gírar - tannhjól & keðjur - rcimar & reimskífur - og alt annað til sjós og lands
dælur- lokar- ásþctti- legur- pakkningarefni
smurefni - smurkcrfi - hrcinsicfni
ni/icp
http://www.poulsen.is poulsen@pouIsen.is
Sjómannablaðið Víkingur - 13