Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2002, Qupperneq 14
Gestur Gunnarsson tœknifrœðingur skrifar
Vísindi
yísindamenn
Ef flugvél leggur upp í ferð þar sem
fyrirséð er að flugtími verði meira en 8
klukkustundir þurfa tvær áhafnir flug-
manna að vera um borð. Ekki er talið að
flugmaður sem hefir verið lengur við
störf ráði fullkomlega við sitt starf. Á
minni fiskiskipum hafa skipstjórar og
stýrimenn staðið nánast allan sólahring-
inn dögum saman í aflahrotum. Vegna
þessa er hægt að rekja beint og óbeint
fjölda óhappa, sum með manntjóni.
Nú heyra þessir málaflokkar báðir
undir samgönguráðuneytið og umhugs-
unarefni að þarna skuli vera misræmi.
Undarlegast í þessu er það að flugvélar
nútímans ganga meira og minna á sjálf-
stýringu. Eða eins og flugmaðurinn
sagði; við erum bara í því að lenda þess-
um flugvélum núorðið.
Skipstórnarmennirnir þurfa aftur á
móti að vera á stöðugu varðbergi.
Siglingastofnun hefir gefið út skýrslu
um Hornafjarðarós en óssvæðið hefir
verið fyrirferðarmikið rannsóknarefni hjá
þeim í áratugi. Eiga þeir þakkir skildar
fyrir að safna saman í eina bók ýmsum
fróðleik um þetta svæði og atburði sem
þar hafa orðið. Óssvæðið er með erfið-
ari siglingaleiðum hér við land. Þannig
hagar til austur þar að tveir náttúrukraft-
Úfbúum
lyfjakistur
fyrir skip og báfa
Eigum ávallt tilbúna sjúkrakassa
fyrir vinnustaði, bifreiðar og heimili.
Lyf & heilsa
• Kringlan 1. hæð, sími: 568 9970
• Hafnarstræti Akureyri, sími: 460 3452
VLyf&heilsa
J A P ú T E K mmmm
B E T R I L í Ð A N
Gestur Gunnarsson.
ar takast á. Annarsvegar aflmikil úthafs-
alda og á móti henni fallstraumur af 70
ferkílómerta vatnasviði. Inn á vatnasvið-
ið fellur Hornafjarðarfljót á móti aðfall-
inu. Útfallið heldur heldur svo ósnum
opnum. Á tíu til fimmtán ára fresti ganga
mikil suðvestan veður yfir ísland og þá
vilja rofna rifin þarna við Hornafjörð. Fer
þá í gang mikil rannsóknahrota hjá
srand- og sjávarfallaverkfræðingum.
Hæstu öldur í þessum veðrum geta
orðið allt að 25 m. háar en svokölluð
kennialda (það er sú ölduhæð sem vanir
menn skynja) hefir mælst um 18 metra
há. Þetta er hátt í tvöföld hæð s.k. árs-
öldu hér við land. Talið er að efnisflutn-
ingur sexfaldist með tvöföldun öldu-
hæðar, þannig að ljóst er að töluvert
gengur á í fjörunni við þessar aðstæður.
Fram kemur í framangreindri skýrslu að
hafnarsvæðið á Hornafirði grynnist um
tíu sentimetra á ári vegna sets. Ekkert er
fjallað um minnkandi dýpi vegna sets á
öðrum hlutum vatnasviðsins. Aftur á
móti heilmiklar spekúlasjónir um mögu-
lega grynnkun vegna meintrar sveigju
jarðskorpunnar. Með grynnkandi vatna-
sviði dregur úr fallstraumnum og dýpi
minnkar í ósnum og framan við hann.
Guð hjálpar þeim sjálfur. Hornfirðingar
gætu prófað að plægja upp siglinga-
rennu út grynnslin, með trollhlerum
tengdum saman með keðjum. Bara að
gæta þess að vera á réttu falli, fínt efni
sekkur hægt í köldu vatni og rekur burtu
með fallstraumnum. Merkilegt er að
aðfallið er talið á einum stað tíu milljón
tonnum meira en útfallið. Það er e.t.v.
eðlilegt að eitthvað skolist til í svona
pappírsflóði (1,7 kílógrömm með káp-
unni) Vonandi er þetta bara prentvilla.
Höfundar hafa farið víða um lönd til að
segja frá þessum merkilegu rannsóknum
og hafa m.a. heimsótt eftirtalin lönd :
Bandaríkin Danmörk, Þýskaland, Möltu,
Canada, Japan og Brasilíu auk þess sem
haldin hafa verið sérstök málþing og ráð-
stefnur á Höfn og í Kópavogi.
Auk þessa hafa höfundarnir, sam-
kvæmt því sem fjölmiðlafréttir herma,
annast hönnunarstörf fyrir ÍSTAK vegna
einhverra hafnarframkvæmda úti í heimi.
Það er íhugunarefni hvaða tilgangi um-
svif þessara s.k. vísindamanna þjóni.
Er þetta dulbúinn stuðningur við flug-
félög og ferðaþjónustu? Er verið að bæta
mönnum lág laun með dagpeningum?
Eru sjórnmálamenn að telja kjósendum
trú um að eitthvað sé verið að gera? Er
þetta gagnhvæm aðstoð vísindamannana
við fjáröflun? Er stöðugt verið að
reikna eitthvað út til að geta birt niður-
stöður einhversstaðar langt í burtu?
Eða er þetta einhverskonar athyglisþrá ?
Fiskifræðingar reikna fiskistofna upp
og niður, út og suður. Leggja blómlegar
byggðir í eyði með heimskulegri hugsun,
sem sem studd er útreikningum sem
ekki þola dagsbirtu. Nú er ekki verið að
halda því fram að þetta séu slæmir
menn. Yfirleitt eru þetta menn úr efri
millistétt sem af einhverjum orsökum
hafa setið lengi í skóla og hafa aldrei
fengið tækifæri til að mannast úti í nátt-
úrunni. Skólaganga þessara manna hefir
legið gegnum s.k. latínuskóla eða arftaka
þeirra. Latínuskólarnir voru upphaflega
stofnaðir til að kenna prestum þeirra
fræði. Ennþá tengir almenningur, þetta
kerfi ósjálfrátt við himmnaföðurinn. Við
slík öfl deila menn ekki.
14 - Sjómannablaðið Víkingur