Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2002, Blaðsíða 33
undanþágu frá stefnunni í
heild sinni.
Spurningin er hins vegar sú
hvort íslendingar geti tryggt
forræði sitt yfir fiskimiðunum
'nnan sameiginlegu sjávarút-
''egsstefnunnar í samningavið-
læðum - og jafnvel hagnast á
henni.
„Norðmenn ndðu að tryggja svo til óbreytta stöðufrá EES-samkomulaginu og engin ástæða er til að œtla að
árangur okkar íslendinga yrði lakari i viðræðum við Evrópusambandið.”
Veiðiréttindi og aflahlut-
deild
Efnahagslögsaga íslendinga
liggur hvergi að efnahagslög-
sögu Evrópusambandsins og
eru flestir nytjastofnar innan
íslenskrar lögsögu staðbundnir
°g falla því klárlega undir skil-
greiningu 10. greinar reglu-
gerðar nr. 3760/92 (sjá bls.
156). Á milli íslendinga og
Evrópusambandsins eru því
engir samningar í gildi urn
nýtingu á deilistofnum í lögsögum ís-
lands og sambandsins líkt og er á milli
Norðmanna og sambandsins um þeirra
lögsögur.
Samhliða EES-samningnum gerðu ís-
lensk stjórnvöld samning við Evrópu-
sambandið um gagnkvæm fiskveiðirétt-
1T1di. Samkvæmt honum hefur Evrópu-
sambandið rétt til að veiða allt að 3 þús-
Ulld tonn af karfa á afmörkuðu svæði í
íslenskri lögsögu. Á móti fá
Islendingar að veiða 30 þúsund tonn af
loðnu sem Evrópusambandið hefur feng-
'ö frá Grænlendingum. Um veiðar Evr-
°Pusambandsins gilda rnjög strangar
reglur og hefur eftirtekja skipa Evrópu-
sambandsins verið mjög rýr. Árið 1996
náðu þau einungis að veiða um 220 tonn
af þeim 3 þúsund tonnum sem þau hafa
heimild til að taka úr sjó. Eftir nokkrar
Elslakanir af hálfu
Islendinga hefur aflinn aukist og var
236 tonn árið 1998 og 1.353 tonn árið
1999 (Utanríkisráðuneytið, 1997, bls. 18;
lJlanríkisráðuneytið, 1992, bls. 31; Utan-
nkisráðuneytið, 2000, bls. 222).
Hvað varðar aðrar veiðiheimildir Evr-
opusambandsþjóða á íslandsmiðum má
geta þess að Belgar höfðu um tima rétt til
að veiða allt að 4 þúsund tonn af botn-
fiski hér við land sem kom til út af þvi
að þeir voru okkur hliðhollir í 200 mílna
landhelgisdeilunni.
Síðustu árin náðu þeir einungis að
nýta rúm 1.000 tonn. Sú veiðireynsla
sem Evrópusambandið hefur innan ís-
lenskrar lögsögu, og byggt yrði á við út-
hlutun kvóta, er því sáralítil.80 Reglan
urn hlutfallslega stöðugleikann myndi
því tryggja að lílil breyting yrði á úthlut-
un veiðiheimilda til íslenskra skipa í ís-
lenskri lögsögu.
í aðildarviðræðum má gera ráð fyrir að
lágmarkskrafa íslendinga yrði sú að afla-
heimildir Evrópusambandsins myndu
ekki aukast frá því sem nú er. Pessi krafa
er sambærileg þeirri sem Norðmenn
settu fram en þeim tókst að tryggja svo
til óbreytta stöðu mála frá EES- samn-
ingnum (sjá bls. 145-146). Leiða má lík-
um að því að Evrópusambandið myndi
gera kröfu um að því yrði gert tæknilega
mögulegt að veiða þau 3 þúsund tonn af
karfa sem það hefur rétt á samkvæmt
EES-samningnum. Aílaheimildir sam-
bandsins eru, eins og áður sagði, bundn-
ar við takmarkað svæði, auk þess sem
enginn þorskur má vera í meðafla. Veiði-
leyfi eru gefin út á takmarkaðan fjölda
skipa, önnur en frystiskip, á tímabilinu
frá júlí til desember og hefur fram-
kvæmdastjórnin þegar komið þeim upp-
lýsingum á framfæri við íslensk stjórn-
völd að hún dragi í efa að arðbærar veið-
ar séu mögulegar eftir settum skilmálum
og mikilvægt sé að breyta því (Utanríkis-
ráðuneytið, 1992, bls. 31; Utanríkisráðu-
neytið, 1997, bls.18). Að auki má gera
ráð fyrir að Evrópusambandið fari fram á
veiðiheimildir út á veiðireynslu Belga.
Líkleg niðurstaða í aðildarviðræðum
yrði sú að Evrópusambandinu yrði gert
tæknilega mögulegt að veiða upp í á-
kvæði EES-samningsins. Pað yrði gert
með því að stækka veiðisvæðið og rýmka
veiðitímabilið. íslendingar myndu hafna
kröfum Evrópusambandsins um veiði-
heitnildir út á veiðireynslu Belga en
koma þó lil inóts við sambandið á þann
hátt að leyfa þorsk í meðafla sem yrði
jafnframt liður í því að gera karfaveiðar
satnbandsins tæknilega mögulegar. Með-
afli mætti þó aldrei fara yfir 10%. í stað
þess að semja um fasta aflatölu er líklegt
DNG handfæravindur og STK staðsetningarkerfi
Átaks- og lengdarmælingar fyrir togskip og dragnótabáta
Sjóvéla línukerfi og LineTec stjórnbúnaöur
VAKI
DNG
Armúli 44 • 108 Reykjavík
sími 595 3000 • fax 595 3001
Lónsbakki • 602 Akureyri
sími 461 1 122 • fax 461 1125
www.vaki.is
vaki@vaki.is
Sjómannablaðið Víkingur - 33