Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2002, Page 74
uppi um hámarksgæði og ferksleika afl-
ans.
Hröð upphafskæling
Pað sem skiptir máli er að upphafskæl-
ing sé hröð strax í byrjun til að fá bestu
gæðin á hráefni. í dag horfum við alfarið
á hversu margar kílókalóríur þarf til að
kæla niður hráefnið. Pegar fiskur er
kældur með þessum kælimiðli, þá renn-
ur þessi kælimiðill um fiskinn og snögg-
kælir hann niður , það sem eftir stendur
er saltlaus ís sem viðheldur kælingunni
því þegar búið er að kæla fiskinn niður
þá heldur ísinn sem eftir er fiskinum við
0°C. Þetta lengir í öllum tilfellum
geymslutímann og fiskurinn kemur
ferskari upp ísþykkninu fyrir bragðið. ís-
kerfi hafa sett upp kerfi í laxeldisslátrun í
Noregi, Skotlandi og í Færeyjum, þar
sem við til dæmis settum niður vélar hjá
Suðurlaxi í fyrra í samvinnu við Marel.
Þar keyra vélarnar nánast allan sólar-
hringinn. Þeir slátra þar 70-80 tonnum á
dag af laxi og nota þessar vélar til að
kæla niður laxinn úr 10-f2 gráðum og
niður í 3 °C áður en hann fer í vinnslu.
Þar er mikil ánægja með vélarnar og það
hversu áreiðanlegar þær eru, en þær hafa
verið í notkun i yfir 4000 klst á 9 mán-
uðum.
Gefur góða raun
Þetta kerfi er notað bæði í litlum og
stórum skipum og einnig i stórum upp-
sjávarveiðiskipum sem veiða síld og
loðnu. S.l. haust fórum við í samstarfs-
verkefni með ísfélaginu í Vestmannaeyj-
um, settum vélar um borð í Hörpu VE-
og var markmiðið var að kæla niður síld,
350 tonn sem kæmu að landi þar sem
hitastig mundi verða innan við 2,5°C.
Síldin var 8°C til 10°C þegar hún var
veidd og var mjög áhugavert að fylgjast
með því að hitastigið mældist 0°C til 1°C
þegar skipið kom að landi og landaði afl-
anum. Þetta kom ótrúlega vel út og fjár-
festing í búnaðinum skilaði sér hratt,
enda mikill verðmunur á síld í frystingu
eða gúanó. í framhaldi af því höfum við
sett vélar í fleiri báta i Vestmannaeyjum.
Menn eru að horfa til þess að koma með
betra hráefni að landi sem þýðir meiri
verðmæti fyrir áhöfn og útgerð.
Það má nefna að ísþykknivélar voru
settar nú s.l. mánuði í Sigurð Ólafsson
SF-, Hafnarey SF, Sigurbjörgina ST-,
Guðna Ólafsson VE-, og Helguna RE-,
Björninn RE-, Stíganda VE- og nú síðast i
ísleif VE og Berg VE-. Það spyrst fljótt út
hvernig gengur og sífellt fleiri sjá hvaða
möguleikar felast í iskerfi okkar. Flutn-
ingsaðilar segja okkur að þeir þurfi að
borga heilmikið fyrir flutning á ís sem
notaður er með fiskinum. Ef þeir geti
sparað sér ísnotkun, það er flutt fleiri
kíló af fiski færri af ís. Þetta er aðeins
hægt ef fiskurinn er fullkældur þegar
hann er settur í kassana þá munar það
miklu. Áhugi þeirra er þvf einnig vax-
andi.
Bylting í kælingu
Sifellt eru gerðar meiri kröfur um betra
hráefni. Við höfum báðir verið til sjós og
kynnst þessu af eigin raun. ísþykknið er
bylting í kælingu og á eftir að fara víða.
Það er vinnusparandi að nota ísþykkn-
ið þegar unnið er með kör og kassa þar
sem fiskinum er raðað í körin og fs-
þykkninu sprautað úr slöngu yfir fisk-
inn.
Það sem þarf þó að gera er að fylgjast
vel hitastigi í lestum skipa, sérstaklega
fyrst þegar menn byrja að nota ísþykkn-
ið. Ekki nota of lítið og ekki og mikið,
allt eftir því hversu lengi á að geyma
fiskinn.
Gæðin haldast alla leið
ísþykknið viðheldur ferskleikanum og
gæðunum alveg frá veiðum og þar til
hann er unninn. Stórir frystitogarar þurfa
að flokka aflann eftir stærðum eftir
blóðgun og aðgerð. Síðan geyma þeir
þessa flokka í ákveðnum sorteringakör-
um Við viljum dæla þessum kælivökva
okkar út um allt, í móttöku, í sortering-
arkör og víðar í vinnslunni svo hægt sé
að viðhalda kuldastiginu frá því fiskur-
inn er veiddur og þar til hann dettur
ofan í lest, annað hvort frosinn eða fersk-
ur í geymslu.
Það er hægt að nota ísþykkni nánast
alls staðar til kælingar á öllum fiski. Um
borð í fiskiskipum hvort heldur menn
eru með kör eða kassa, hægt að nota
þykknið í allan bolfisk, rækju, humar,
krabba,uppsjávarfisk og laxeldi. Mögu-
leikarnir eru alls staðar. Rétt notkun ís-
þykknis skilar vörunni rniklu betri þvi
það er ekkert sem pressar hana. Allur
annar ís klessir fiskinn, mer og skemtnir-
ísþykknið umlykur allan fiskinn, kæli-
miðillinn rennur af fiskinum og skolar
hann áfram og gerlamyndun fer síður af
stað. Þetta sanna opinberar tilraunir.
Hver vél sem fer frá ískerfum er þaul-
prófuð áður en hún fer til viðskiptavinar-
ins. Við fylgjum svo vélinni á staðinn,
kennum á hana og mælum með ákveðn-
um vinnubrögðum. Þessu er fylgt eftir
með því að fara með í veiðiferð ef óskað-
Hér er lögð mikil áhersla á góða þjón-
ustu og fyrsta flokks vinnubrögð, sögðu
þeir Haraldur og Páll að lokum.
mm okkat oy
örhum siómönnum bestu kvedjur
ocf óskum joeim tií haminf ju
med sjómaMnadaainn
Félag íslenskra
skipstjórnarmanna
Þar sem fagmennska
og færni er í fyrirrúmi.
www.officer.is
mailto:fsk@officer.is
74 - Sjómannablaðið Víkingur