Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1962, Page 3

Náttúrufræðingurinn - 1962, Page 3
Náttúrufr. - 32. árgangur - 3. hefti - 97.—144. siða - Reykjavik, október 1962 Eypór Einarsson: Ólafur Davíðsson 1862 - 26. febrúar - 1962 Hinn 26. febrúar síðastlið- inn voru liðin 100 ár frá fæð- ingu Ólafs Davíðssonar, en hann fæddist að Felli í Sléttu- lilíð árið 1862. Foreldrar Ólafs voru síra Davíð Guðmunds- son, prestur að Felli, síðar pró- fastur að Hofi í Hörgárdal, og Sigríður Ólafsdóttir Briem, kona hans. Náfrændur Ólafs í föðurætt voru þeir Jón Árna- son, bókavörður og þjóðsagna- safnari, Sigurður Guðmunds- son, málari, og Guðmundur Magnússon, prófessor; en Valdemar Briern, vígslubisk- up, var móðurbróðir hans. Ólafur settist í 2. bekk lærða skólans í Reykjavík haustið 1877 og lauk þaðan stúdents- prófi vorið 1882. Strax frá upphafi skólagöngu sinnar virðist hann hafa haft gaman að náttúrufræði, því í bréfi til föður síns frá vorinu 1878 skrifar hann, að af öllum námsgreinum þyki sér mest gaman að grasafræði, og það jafnvel jró kennsla í henni sé vesæl hér í skólanum, eins og hann segir. Annars hefur liann

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.