Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1962, Blaðsíða 16

Náttúrufræðingurinn - 1962, Blaðsíða 16
110 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN vitað með vissu. Um samband Reykjavíkursvæðisins við önnur ná- læg jarðhitasvæði er ekki heldur neitt hægt að segja enn. Hengilssvœðið. Jarðhitasvæðið kringum Hengil er um 50 km2 að stærð og bor- anir hafa einungis farið fram eitthvað að ráði við suðurjaðar svæð- isins, í og upp af Hveragerði. Þar hafa verið boraðar 8 djúpar holur, frá 300 til 1200 m á dýpt. Lega þeirra er sýnd á 5. mynd. í flestum þeirra hafa verið gerð- ar mælingar á hita með gufu- þrýstingshitamæli, og hefur þá jafnan verið leitazt við að finna hinn óraskaða berghita eins og hann var áður en borun var gerð. Á 6. mynd eru sýndar mælingar úr þremur af þessum holum. Eru þær gerðar, þegar holurnar hafa staðið lokaðar í að minnsta kosti einn mánuð, en þá má reikna með að þær hafi nokk- urn veginn náð hitajafnvægi við bergið í kring. 5. mynd. Kort, er sýnir legu borhola Þessar holur liggja nokkurn á Hengilssvæðinu. veginn á línu frá norðri til suð- urs og er hola G-1 nyrzt og G-5 syðst. í öllum holunum vex hitinn í fyrstu mjög ört og nær hámarki á vissu dýpi en lækkar síðan aftur þar fyrir neðan. Þessi hámarksliiti er minnstur í syðstu hol- unni, en fer vaxandi norður eftir. Dýpið jiar sem hitinn er mest- ur, fer einnig vaxandi eftir því sem norðar dregur. Hæsti hiti, sem mælzt hefur í borholu á íslandi, er í holu G-l, 232°C á rúm- lega 600 m dýpi. Til samanburðar má geta þess, að mesti hiti, sem mælzt hefur á jarðhitasvæðum á Ítalíu, er um 245°C (7) og á Nýja Sjálandi allt að 295°C (8). Hitalækkunin neðan við liámarkshitann í þessum borholum er nokkuð athyglisverð og verður helzt skýrð með því, að meira og minna lárétt vatnsrennsli valdi hámarkshitanum. Aðaluppstreymis-

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.