Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1962, Blaðsíða 49

Náttúrufræðingurinn - 1962, Blaðsíða 49
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 143 Jurtaspjall. I. Sumarið 1904 fann Helgi Valtýsson rithöfundur súrsmæru (Ox- alis acetosa) og lyngbúa (Ajuga pyramidalis) á Seyðisfirði, fyrir utan Hádegisá uppi undir klettum. Þekkti hann báðar tegundirn- ar frá dvöl sinni í Noregi, en þar eru þær algengar. Helgi sagði Stefáni Stefánssyni grasafræðingi frá þessu, en hann taldi helzt að hér myndi um slæðinga að ræða, t. d. frá Noregi. Svo náði þetta ekki lengra — að sinni. — En viti menn! Árið 1940 fannst lyng- búinn villtur í Njarðvík eystra og Loðmundarfirði og síðar í Mjóafirði og Borgarfirði eystra. Hann er sem sagt góður og gildur „Áustfirðingur“ og ekkert líklegra en að hann eigi eftir að endur- finnast á Seyðisfirði. Víkjum nú að súrsmærunni. Sumarið 1916 fann Halldór Ás- grímsson, síðar kaupfélagsstjóri, þessa tegund við Hvannstóð í Borgarfirði eystra og síðar fannst hún í Loðmundarfirði. Ekki er sagan öll jjar með. 30. júlí 1961 var ég staddur á Seyðisfirði að skoða garða. Hjónin Gemma og Harald Johansen sýndu mér garð sinn. Frú Gemma er blómakona mikil, ræktar blóm úti og inni og fer út um hlíðar og hjalla í blómaleit. „Villiblómin eru svo falleg,“ sagði hún, „ég dáist t. d. enn að breiðu snjóhvítra maríu- vandablóma, sem ég fann í fyrra við lítinn foss undir Bjólfi, alveg upp við hamrana. En nú skal ég sýna þér nokkuð, sem grasafræð- ingi kemur e. t. v. á óvart.“ Það reyndist orð að sönnu, því að í dá- litlu steinbeði í garðinum uxu súrsmæra og munkahetta. „Hvar í ósköpunum náðir þú í súrsmæruna?“ spurði ég. Hún kvaðst hafa vitað um hana í mörg ár, innan um grjót, a. m. k. á þremur stöð- um sunnan fjarðarins — utan við Hádegisá og Dagmálaá. Þetta er

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.