Náttúrufræðingurinn - 1997, Síða 17
TÚNDRA - FREÐMÝRI
Orðið tundra hefur lengi verið
þýtt á íslensku með orðinu freð-
mýri, sem er ekki alls kostar
_________ rétt. Tundra er notað í grasa-
fræði, einkum þó plöntulandafræði, um
gróin eða hálfgróin svæði norðan (á suður-
hvelinu sunnan) og ofan náttúrulegra
skógarmarka. Slík svæði eru langt frá því
alltaf mýrlend heldur oftar vaxin móa- eða
runnagróðri (1. mynd) og enn oftar strjál-
um mela- eða bersvæðisgróðri (2. mynd),
sem engum myndi detta í hug að kalla
mýri á íslensku. A norðlægum slóðum, eða
norðan heimskautsbaugs, er jarðvegur
víða frosinn árið um kring, þ.e. með
sífrera, nema hvað allra efsti hlutinn
þiðnar á sumrin, en til fjalla getur sífreri
náð sunnar. Sums staðar, t.d. í norðurhluta
Síberíu, vex reyndar skógur á landi með
Eyþór Einarsson (f. 1929) lauk ínag.scient.-prófi í
grasafræði frá Kaupmannahafnarháskóla 1958. Hann
hefur verið deildarstjóri á grasafræðideild Náttúru-
fræðistofnunar Islands frá 1958 og var forstöðumaður
stofnunarinnar í 12 ár. Eyþór sat í Náttúruverndarráði
1959-1990 eða í 31 ár samfellt, var formaður þess
1978-1990 og hefur nýlega tekið sæti í ráðinu á ný.
Hann var formaður Hins íslenska náttúrufræðifélags
árin 1964-1965 og 1976-1979 og varð heiðursfélagi
1992.
1. mynd. Smárunnatúndra þar sem mest ber áfjalldrapa á eyjunni Ella 0 í Kong Oscars
Fjord á Norðaustur-Grænlandi, 72° 53' n.br. Myndin var tekin 23. ágúst 1958. Ljósm.
Eyþór Einarsson.
Nattúrufræðingurinn 66. (2), bls. 63-65, 1997.
63