Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1997, Síða 20

Náttúrufræðingurinn - 1997, Síða 20
Randhvítt egar ég dvaldi í Noregi á náms- árunum gladdi það mig ætíð þegar ég sá fréttamyndir frá ís- landi í blöðum eða sjónvarpi. Ég veitti því þá athygli hve íslenskt landslag var frábrugðið því norska, og var þetta sér- lega áberandi að vetri þegar snjór huldi jörð að hluta. Þá komu gilskorningarnir og klettabeltin greinilega fram sem hvítar og svartar rendur. Þetta á sér auðvitað þær skýringar að Island er myndað við eldgos úr fremur mjúku bergi sem veðrast létt, en Skandinavísku fjöllin eru hörð fellingafjöll sem hafa risið í tímanna rás. Þegar ég svo einu sinni á heimleið kom við í Færeyjum fannst mér ég vera kominn heim, fjall- myndunin eins, klettabelti og gil, enda Bjarni E. Guðleifsson (f. 1942) lauk cand.agr.- prófi í jurtaræktun frá Landbúnaðarháskólanum á Ási í Noregi 1966 og lic.agr.-prófi (Dr. scient.) 1971. Hann var tilraunastjóri við Tilraunastöðina á Akureyri og st'ðar á Möðruvöllum 1971-1980, ráðunautur hjá Ræktunarfélagi Norðurlands 1981-1990 og sérfræð- ingur við Tilraunastöðina á Möðruvöllum frá 1991. 1. mynd. Horft til norðausturs af Rimum í Svarfaðardal þvert yfir Hálsdal og sér austur yfir Eyjafjörð. Krossafjallið, austan Hálsdals, er áberandi röndótt og í því eru snjórendur bæði langs eftir fjallinu og niður eftir því. Myndin tekin í júlíbyrjun 1989. Ljósm. Bjarni E. Guðleifsson. 66

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.