Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1997, Síða 28

Náttúrufræðingurinn - 1997, Síða 28
lökull 1. mynd. Hringrás vatns. Uppgufun verður langmest úr sjó, en hún getur einnig verið umtalsverð úr stöðuvötnum sem og útöndun frá gróðri. Hluti úrkomunnar getur bundist tímabundið í jöklum eða runnið afá yfirborði en hluti sígur niður í berggrunninn. Neðan ákveðins dýpis (grunnvatnsborðs) eru allar glufur og holur bergsins fylltar vatni (grunnvatni). Urkoma sem hripar gegnum berggrunninn ofan grunnvatnsborðsins nefnist sigvatn. Uppsprettur myndast þar sem grunnvatnsborð sker yfirborð. I heildina streymir grunnvatn frá hálendi til láglendis. Oregla verður á þessu streymi þar sem jarðhitasvœði eru. Þar leitar grunnvatnið djúpt í berggrunninn og hitnar. Við það þenst vatnið út, stígur aftur og myndar laugar eða hveri á yfirborði. Mikið magn efna, sem ættuð eru úr sjó, berst með úrkomunni sem fellur á landið. Þannig er lauslega áœtlað að magn sjávarœttaðra salta sem falla á Island árlega nemi um einni milljón tonna. Það efnismagn sem skolast út úr jarðvegi og bergi og berst til sjávar er sambærilegt að magni til við hin sjávarœttuðu efni í úrkomunni. Þetta magn svarar til efnis í veg sem er 10 m breiður, 2 m hár og 25 km langur. efnavarmafræði fela í sér athuganir á hvers konar efnahvörfum milli jarðefna, eins og steinda og vatns, og túlkun niðurstaðna með efnavarmafræðilegum aðferðum. Til- gangurinn er að auka skilning á samsvar- andi efnahvörfum í náttúrunni. Vaxandi áhersla á umhverfismál og aukinn skilningur á gildi ómengaðs vatns sem auð- lindar, jafnhliða framförum í tilraunajarð- efnafræði og hagnýtingu efnavarmafræð- innar, hafa valdið stórstígum framförum í þekkingu á jarðefnafræði vatns, þ.e.a.s. þeim ferlum sem ráða styrk steinefna og loft- tegunda sem finnast í meira eða minna mæli í öllu vatni, bæði á yfirborði og í berggrunni. ■ HRINGRÁS VATNS Lesendur kannast vafalaust vel við þá hringrás vatns, sem á sér stað í andrúms- lofti, á yfirborði jarðar og í efstu lögum jarðskorpunnar og felur í aðalatriðum í sér uppgufun úr sjó, þéttingu rakans í andrúms- loftinu, úrkomu og afrennsli hennar á yfir- borði og gegnum berggrunninn aftur til sjávar (1. mynd). Þess er sjaldnar getið að samfara þessari hringrás eiga sér stað miklir flutningar á öðrum efnum en vatni. Á 2. mynd er sýnt hvernig gufuþrýstingur vatns breytist með þrýstingi. Við 25°C er gufuþrýstingurinn 0,032 bör. Vatn við þetta hitastig gufar upp þar til gufuþrýstingurinn í loftinu yfir vatninu nemur 0,032 börum. Þessi þrýstingur er venjulega nefndur hlut- þrýstingur vatns. Ef þrýstingur í andrúms- lofti er 1 bar, hiti þess 25°C og loftið ná- kvæmlega gufumettað, nemur rakainnihald þess 3,2%, þ.e. (hlutþrýstingur vatns/heild- arþrýstingur) x 100 = (0,032/1) x 100. Rakt loft er léttara í sér en þurrt. Þetta veldur því að loft, sem tekur í sig raka við yfirborð jarðar, hefur tilhneigingu til að stíga. En hiti loftsins hefur líka áhrif á eðlisþyngd þess, 74

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.