Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1997, Qupperneq 30

Náttúrufræðingurinn - 1997, Qupperneq 30
4. mynd. Mengun í lofti yfir Reykjavík. Móðan hefur gulleita slikju sem stafar af köfnunarefúsoxíði frá útblæstri bíla. Þegar mynd þessi var tekin í febrúar 1996 sást greinilega að móðan var mest yfiir miðri borginni en dvínaði og hvarf til beggja átta. Mengun af þessu tagi sést oft vel á vetrum í Reykjavík þegar veður er stillt og lofi stöðugt. Ljósm. Stefán Arnórsson. Yfirleitt er mest þeirra uppleystu efna sem mælist í úrkomu sjávarættað. Þó getur mengun frá iðnaði og bflaumferð, sér- staklega í nágrenni stórra þéttbýlissvæða, haft umtalsverð áhrif (4. mynd). I okkar strjálbýla landi eru nær öll efni í úrkomu sjávarættuð. Styrkur þessara efna í úrkomu á hverjum stað er breytilegur eftir vindátt, veðurhæð og fleiri veðurfarsþáttum. Að meðaltali er styrkur þessara efna mestur í úrkomu við ströndina, en minnkar inn til landsins og með hæð yfir sjó. Þannig eru uppleyst efni í úrkomu við suðurströnd íslands að meðaltali um 40 mg í hverjum lítra af úrkomu en aðeins um 4 mg uppi á Vatnajökli. Klóríð (CÞ) er um helmingur af magni þessara uppleystu efna. 5. mynd sýnir hvernig styrkur klóríðs í úrkomu breyt- ist yfirlandið. ■ EFNI í VATNI Styrkur efna í yfirborðsvatni og grunnvatni er mjög breytilegur, allt frá fáum tugum gramma í rúmmetra vatns upp í tugi prósenta (1. tafla). I lækjum, ám og köldu grunnvatni er styrkur uppleystra efna yfirleitt innan við nokkur hundruð milligrömm í lítra. Það sem mestu ræður um styrk efna í þessu vatni er þrennt: (1) styrkur þeirra í úrkomunni, (2) gerð þess jarðvegs og þeirra bergtegunda sem vatnið streymir um og (3) dvalartími vatnsins í jarðvegi og bergi. Snerting við lífrænan jarðveg hefur mikil áhrif á styrk og innbyrðis hlutföll margra efna í vatninu. I jarðhitavatni er styrkur uppleystra efna meiri en í köldu vatni og vex styrkurinn með hita (1. tafla, 6. mynd). Astæðan er sú að vatnið leysir því meira af efnum úr berginu sem það er heitara. Hinn úrkomuætlaði hluti uppleystra efna er orðinn lítill hluti upp- leystra efna í jarðhitavatni ef það er yfir IOO°C. Hluli þeirra efna sem leysast úr bergi mynda auðleyst sölt á borð við natríum- klóríð, þ.e. venjulegt matarsalt. Hin auð- leystu sölt sýna ekki tilhneigingu til að falla út úr vatninu. Önnur efni sem leysast úr berginu hafa hins vegar tilhneigingu til að bindast á ný og mynda nýjar steindir. Þessi efni falla úl úr vatninu. Mismikið er af efnum í bergi sem mynda auðleyst sölt. Þess vegna ræður bergtegundin sem vatnið streymir um, ásamt hita þess, mestu um styrk upp- leystra efna í jarðhitavatni. Af algengu bergi 76
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.