Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1997, Qupperneq 33

Náttúrufræðingurinn - 1997, Qupperneq 33
6. mynd. Uppleyst efiii í köldu og heitu vatni á Islandi. Hringir merkja vatn sem inniheldur ekki jarðsjó en punktar jarð- hitavatn þar sem hluti uppleystu efimnna er kominn frá jarðsjó. Jarð- sjórinn í þessu vatni er ýmist tilkominn við írennsli sjávar í berg- grunn við núverandi aðstceður eða í lok ís- aldar fyrir um 10.000 árum, þegar mestallt núverandi láglendi var undir sjó. árvatni sem í þau rennur. Vegna uppgufunar safnast steinefnin smám saman upp og vatnið verður saltara og saltara eftir því sem tíminn líður. Selta sjávar er til orðin á sama hátt. Uppleyst efni í vatni hafa afgerandi áhrif á viðgang gróðurs og hvers konar not eins og almenna neyslu, iðnað og fiskeldi svo dæmi séu tekin. Uppleystu efnin ráða mestu um bragðgæði vatns. Áburðargjöf, hvort sem um er að ræða lífrænan áburð eða tilbúinn, felur í rauninni í sér að bæta efnum í jarðvegsvatnið sem plöntur fá næringarefni sín úr. Víða um heim hefur yfirborðsvatni og grunnvatni verið spillt með mengun vegna notkunar tilbúins áburðar í miklu magni, margskonar iðnaðar og málmvinnslu. Ástæðan er að þessi mannanna verk leiða til þess að ýmis efni berast í vatnið og styrkur þeirra fer yfir þau mörk sem ásættanleg eru fyrir ýmsar lífverur eða notkun vátnsins. Jarðvegur og gott yfirborðs- og grunnvatn er mikilvægasta auðlindin fyrir líf ájörðinni. Skaðleysismörk fyrir mörg efni í vatni vegna ýmissa nota eru sýnd í 2. töflu. í vatni, sérstaklega yfirborðsvatni, er yfir- leitt eitthvað af lífrænum efnum og lífverum eins og gerlurn. Uppruni þeirra er bæði nátt- úrulegur og af mannavöldum. Þessi efni og lífverur hafa áhrif á gæði vatns og geta spillt þeim en ekki verður fjallað frekar um þau í þessu greinarkorni. Á Islandi er víða gott vatn til neyslu og iðnaðar. Þó eru það ýkjur að hér sé að finna heimsins besta vatn. Erfitt er að treysta á gæði yfirborðsvatns. Jafnan er hætta á að það spillist af lífrænum efnum, lífverum og gruggi. Ennfremur getur járn úr inýrarvatni og öðru jarðvegsvatni haft neikvæð áhrif á bragðgæði og valdið hvimleiðum útfell- ingum í leiðslum og annars staðar. Varasamt er að treysta gæðum vatns í lindum sem koma undan hraunum. Yfirborðsvatn getur átt greiða leið niður í gegnum hraunin í lindavatnið og spillt því. Slfkar jarðfræði- legar aðstæður eru við surn vatnsból Reyk- víkinga. Tryggast er að vatn, sem sótt er með borun niður í berggrunn, sé laust við lífræna mengun frá yfirborðsvalni. Þó getur árangur reynst ófullnægjandi ef borað er í sprungur 79
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.