Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1997, Side 39

Náttúrufræðingurinn - 1997, Side 39
og kerfið berg-vatn leitar í átt til efnajafn- vægis (8. mynd). ■ ÚTFELLING STEINDA Við leysingu steinda í bergi og samhliða aukningu á styrk uppleystra efna í vatninu kemur að því að vatnið mettast af einhverri steind eða steindum. Við mettun eða öllu heldur nokkra yfirmettun hafa efnin í vatn- inu, sem steindin samanstendur af, tilhneig- ingu til að falla út - mynda steindina. í flestum tilfellum eru upprunalegar steindir í bergi (frumsteindir) mun leysanlegri í vatni en svonefndar veðrunar- og ummyndunar- steindir (síðsteindir). Á þetta sérstaklega við um steindir í storkubergi. Útfelling síð- steinda, sem fjarlægir uppleyst efni úr vatni, veldur því að vatnið nær aldrei að mettast af frumsteindunum. Þær halda því áfram að leysast upp og síðsteindir að myndast. I sumu bergi á jarðhitasvæðum eru frum- steindirnar alveg horfnar og ummyndunar- steindir komnar í staðinn. Hraði efnahvarfa, þar með talin leysing frumsteinda og útfelling síðsteinda, vex mjög með hækkandi hita. Þess vegna er um- myndun bergs af völdum jarðhitavatns meiri en af völdum kalds grunnvatns eða veðrun- ar af völdum yfirborðsvatns. Aðrir þættir sem hafa áhrif á hraða ummyndunar eru undirmettunarstig frumsteinda bergsins og stærð snertiflatar milli vatns og bergs. Þétt og ósprungin hraunlög í jarðhitasvæðum eru oft óummynduð að mestu þótt nærliggj- andi lög af móbergi séu algerlega ummynd- uð. Hér kemur bæði til að vatnið er undir- mettaðra af gleri móbergsins en frumsteind- um basaltsins og snertiflötur milli vatns og korna móbergsins er miklu stærri en flötur- inn milli vatns og lítið sprungins basalts. ■ LEYSNI FASTRA EFNA f VATNI í kristölluðum efnum eru efnisagnirnar fyrst og fremst jónir og raða þær sér niður eftir ákveðnum reglum. Þessar jónir verða til með þeim hætti að sum frumefni láta af hendi raf- eindir til annarra frumefna. Það sem heldur 8. mynd. Hlutfall kalsíumjóna við vetnisjónir í köldu og heitu vatni. 1 yfirborðsvatni er hlutfallið tiltölulega lágt, en í köldu grunnvatni er það hærra. Hækkuninni veldur leys- ■ ingu steinda í berginu sem vatnið fer um. Þegar hiti vatnsins er yfir 40-50°C rœðst umrætt jónalilutfall af efiiajafiivœgi (ferillinn á myndinni) við ummyndunar- steindir sem myndast við útfellingu úr vatninu. Ekki er hárrétt að segja að efna- jafnvœgi ríki milli Ca+2 og H+ jóna í vatninu og um- myndunarsteinda, heldur að það hafi nálgast verulega. Dreifmg punktanna á mynd- inni fyrir ofan 40°C stafar efalítið að hluta affráviki frá efnajafnvœgi. Hlutfall ann- arra katjóna við vetnisjónir | l l l l J J 300 350 sýnir hliðstœðar breytingar með hitastigi. 85

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.