Náttúrufræðingurinn - 1997, Síða 42
Land úr lofti
ARI TRAUSTI GUÐMUNDSSON
hugamenn um náttúru landsins
leita sér oft yfirsýnar með því að
skoða landakort. Þá er og löngu
þekkt hve eiginlegar loftmyndir,
teknar beint niður úr 5-100 kílómetra
hæð, geta aukið yfirsýn yfir landið. Þeim
til viðbótar eru svo æ fleiri loftmyndir sem
teknar eru skáhalt úr flugvélum af marg-
víslegum viðfangsefnum. Þar eru að verki
ljósmyndarar og eru sumir þeirra jafnframt
flugmenn. Margar slíkar myndir hafa birst
á bók, í dagatölum og sem póstkort. Nægir
að nefna myndir eftir höfunda eins og
Björn Rúriksson, Odd Sigurðsson, Snorra
Snorrason, Jón Karl Snorrason og bækur á
Ari Trausti Guðmundsson (f. 1948) lauk cand.mag,-
prófi í jarðeðlisfræði frá Oslóarháskóla 1973 og nam
jarðfræði við Háskóla íslands 1983-1984. Hann var
kennari við Menntaskólann við Sund 1974-1988. Ari
Trausti hefur m.a. unnið við dagskrárgerð fyrir útvarp
og sjónvarp frá 1978 og ritað kennslubækur f stjörnu-
fræði og jarðfræði.
L mynd. Mats Wibe Lund er norskur að ætt og kom fyrst til íslands 1954 enfluttist hingað
1966. Hann nam Ijósmyndun i Noregi, Frakklandi og Þýskalandi og rekur Ijósmynda-
fyi ii tceki og tölvuvœddan myndabanka í Reykjavík. Ljósm. Christopher Lund.
88
Náttúrufræðingurinn 66. (2), bls. 88-90,1997.