Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 43
2. mynd. Fjallsjökull og vesturhluti Breiðamerkurjökuls. Myndin er tekin er hátt yfir
Breiðamerkursandi. Ljósm. Mats Wibe Lund.
borð við íslandsbók Björns, bók um ísland
með myndum eftir Klaus D. Francke og
nýlega bók með myndum Ragnars Th.
Sigurðssonar af jöklum landsins. Sannast
sagna er unnt að stunda umtalsverða
náttúruskoðun „í stórum mælikvarða“ með
skoðun síðastnefndu myndanna.
Mats
Einn þeirra ljósmyndara sem hafa mikið
fengist við ljósmyndun úr lofti er Mats
Wibe Lund (1. mynd). Hann er einkum
þekktur fyrir svokallaðar átthagaljós-
myndir. Eru það myndir af þéttbýlisstöð-
um og bændabýlum vítt og breitt um
landið, oft allmikið stækkaðar og hafðar til
þess að hengja upp á heimilum og í fyrir-
tækjum. En Mats smellir einnig af þegar
flugvélin ber hann yfir óbyggðir og þekkta
ferðamannastaði. Dæmi um það er með-
fylgjandi mynd af vesturhluta Breiðamerk-
urjökuls og Fjallsjökli (2. mynd) sem tekin
er hátt yfir Breiðamerkursandi. Hún er gott
dæmi um mynd sem gaman og auðvelt er
að skoða sér til yfirsýnar og lærdóms.
Landið séð úr lofti
Athugum myndina nánar. Fremst eru efstu
drög sandsins með þjóðveginum austur til
Hafnar. Fjallsá rennur í alldjúpri rás í
sandinum, úr Fjallsárlóni, sem er ísi lagt
með fáeinum borgarísjökum. Brúin sést
vel. Sandaldan beggja vegna sýnir lengstu
framrás Fjallsjökuls á „litlu ísöld“ (u.þ.b.
1500-1900). Fjallsjökull fellur fram úr
austurhlíðum hins mikla eldfjalls, Öræfa-
jökuls og sneiðir utan í Breiðamerkurfjall
sem skilur hann frá Breiðamerkurjökli. Á
kortum frá 1941 ná jöklarnir tveir saman
framan við Breiðamerkurfjall. I fjallinu
eru tveir áberandi klettatindar. Sá hærri og
þríhyrndi er Rákartindur (774 m), hinn
lægri og fremri er Miðaftanstindur (618
m). Dalurinn innan við Miðafatanstind
heitir Hrossadalur og þar rétt hjá er Bæjar-
sker. Lengst til vinstri, fast upp við sjón-
deildarhring sér á Heljargnípu í norðan-
verðum Öræfajökli, þá kemur slakki við
upptök vestasta ísstraums Breiðamerkur-
jökuls en l'yrir miðri mynd er fjallaklasinn
(jökulskerin) Mávabyggðir með miklu
89