Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 52
Skellengd (mm)
7. mynd. Samband lengdar og þyngdar í kúfskelfrá Norðvestur-, Norður- og Austurlandi.
stöður rannsókna frá Norðvesturlandi
benda að bæði kynin verði kynþroska við
um það bil sömu stærð, en karldýrin reynd-
ust yngri en kvendýrin, sem gæti orsakast af
mismunandi vaxtarhraða kynjanna (Sigmar
Steingrímsson og Guðrún G. Þórarinsdóttir
1995).
Elsta kúfskel sem aldursgreind hefur verið
við Vestfirði reyndist 202 ára og var hæð
hennar 100 mm (Sigmar Arnar Stein-
grímsson, í handriti). Ropes og Murawski
(1983) greindu aldur þriggja stærstu kúf-
skelja sem um getur (> 130 mm) og reyndust
þær vera 53, 93 og 157 ára gamlar og einnar
107 mm sem reyndist vera 221 árs.
Kúfskel er í hópi langlífustu dýrategunda
jarðarinnar og afar hægvaxta. Rannsóknir
erlendis hafa leitt í ljós að skelin vex u.þ.b.
0,5-5 mm á ári við náttúrulegar aðstæður og
fer ársvöxturinn eftir aldri og
umhverfisaðstæðum (Murawski o.fl. 1980,
Beal og Kraus 1990). Kúfskel í eldi vex þó
mun hraðar og hefur vöxtur við slíkar
aðstæður verið mældur 1,8-2,3 mm á
mánuði (Lutz o.fl. 1983).
■ NIÐURLAG
Kúfskeljastofninn við Norðvestur-, Norð-
ur- og Austurland var áætlaður rúmlega
312.000 tonn. Stofnstærð í Breiðafirði,
Faxaflóa og á suðausturmiðum var áætluð
516.000 tonn, árið 1987 (Hrafnkell Eiríks-
son 1988). Þéttleiki og magn skelja á svæð-
ununt reyndust mikil. Langflestar skeljarnar
höfðu náð markaðsstærð og holda-
farsstuðull þeirra var hár. Þyngd innmatar
miðað við lengd skeljar var mest undan
Norðvesturlandi og þar funndust einnig
stærstu skeljarnar.
Nýliðun í stofninum við ísland er ekki
þekkt, en rannsóknin bendir til að hún
gæti verið lítil, þar sem lítið veiddist af
skeljum undir 60 mm lengd. Rannsóknir á
kúfskel við austurströnd Norður-Ameríku
benda til að stofninn þar sé langlífur, hæg-
vaxta, náttúrulegur dauði sé 2-3% og að
engin nýliðun hafi átt sér stað þar í 20-30
ár. Slíkur stoln hlýtur að vera viðkvæmur
fyrir veiðunt og hætta er á ofveiði, þar sem
allt bendir til að hann muni þurfa mjög
98