Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1997, Blaðsíða 66

Náttúrufræðingurinn - 1997, Blaðsíða 66
Eldur var í norðri Vegagerðarmenn uppgötvuðu nýlega leifar mannvistar frá bronsöld í dal þar sem nú heitir Glen Shin í Sutherland, norðarlega á Skotlandi. Þarna virðast hafa lifað um 400 íbúar í einum 50 keiluhúsum í samfélagi bænda sem ræktuðu bygg, ólu kindur, nautgripi og svín og brugguðu mjöð. Ekkert er vitað um uppruna þessa fólks né hvaða mál það talaði en ljóst er að byggð lagðist skyndilega af í dalnum fyrir um 3000 árum. Helst er talið að eyðing byggðarinnar verði rakin til eldvirkni á Islandi. Dr. John Grattan við Jarðvísindastofnun Háskólans í Wales í Aberytwyth bendir á að gífurlegt magn af súru regni hafi fallið á nokkrum vikum í Norður-Skotland um þetta leyti - allt að hálf lest af sýru á hverja ekru lands, eða rúntlega lest á liekt- ara. Hafi úrfellið eytt uppskeru og gert jörðina ófrjóa um ntargra ára skeið svo fólk hafi aðeins átt tveggja kosta völ - að flytjast burt eða svelta. Ömólfur Thorlacius tóka saman eftir pistli í The Daily Telegraph Geimvera með GAMLINGJAVEIKI Sumarið 1995 komst í fréttir stuttmynd í svarthvítu sem sýna átti lík af geimveru er farist hafði í brotlendingu framandi geim- fars yfir Bandaríkjunum 1947. Veran var um 130 cm og hárlaus, ellileg á svip og minnti talsvert á Homo sapiens, að vísu með sex fingur á hvorri hendi og naflalaus (en á því er sagt að Sherlock Holmes hafi þekkt Adam frá öðrum englum í himnaríki, þar sem hann var ekki af konu fæddur). Fréttir v y í kvikmyndinni mátti sjá menn í hlífðar- klæðum skurðlækna spretta líkinu upp og að sögn voru mannfræðingar Bandaríkja- hers þar að kryfja líkama þessa gests utan úr geimnum. Geimveruvinir töldu þetta staðfesta til- vist skjólstæðinga sinna en þeir vantrúuðu héldu því fram að veran væri tilbúningur, trúlega gúmmídúkka. Nú er komin fram þriðja skýringin: Thomas Jansen, húðlæknir við Ludwig- Maximilians-Universitat í Míinchen, telur pottþétt („hundert Prozent Wasserdicht“) að þetta hafi verið um 13 ára stúlka með progeria eða ótímabæra öldrun, en flestir sem haldnir eru þessum erfðasjúkdómi deyja úr elli áður en þeir ná venjulegum kynþroskaaldri. Fáir læknar kunna skil á einkennum sjúkdómsins enda er hann svo fágætur að ekki er talið að nema um tuttugu sjúklingar séu nú á lífi í heiminum öllum. Dr. Jansen, sem hefur tvo þeirra til meðferðar, áttaði sig strax og hann sá myndina á því hvað þar var á ferð. Hann tilgreinir mörg atriði máli sínu til stuðnings svo sem ýmis einkenni á höfði og í beinagerð og lítt áberandi kynein- kenni. Fitulagið í undirhúð þessara sjúk- linga verður mjög rýrt og húðin teygist. Við tognunina hverfur naflinn. Aukafingur eru algengur fylgikvilli sumra erfðasjúk- dóma, meðal annars þessa. Dr. Jansen telur að krufningin hafi verið fagmannlega af hendi leyst. Hann leggur engan dóm á það hvort skýringin á því að læknarnir klædd- ust eins og fyrir skurðaðgerð sé ótti við óþekktan og háskalegan smitsjúkdóm eða að um gabb hafi verið að ræða. Der Spiegel, Nr. 17/22.4.96. Örnólfur Thorlacius tóka saman 112
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.