Náttúrufræðingurinn - 1981, Page 3
Skarphéðinn Þórisson:
Landnám, útbreiðsla og stofnstærð
stara á Islandi
INNGANGUR
Á undanförnum áratugum hafa all-
margar fuglategundir numiö land á fs-
landi. Einn þessara fugla er starinn
(iSturnus vulgaris L.) (1. mynd). f þessari
grein eru birtar tiltækar upplýsingar um
landnámssögu starans, svo og útbreiðslu
hans og líklega stofnstærð í lok áttunda
áratugsins.
Starinn auk 102 annarra tegunda í
gamla heiminum tilheyrir ættinni
Sturnidae (Welty 1964). Upprunalega
var starinn varpfugl um mikinn hluta
Evrasiu (2. mynd). Auk þess hafa starar
verið fluttir til Ástralíu, Nýja-Sjálands,
Suður-Afriku, Polinesíu, Jamaika og
Norður-Ameríku og eru þar nú víða al-
gengir (Kessel 1953, Vaurie 1959, Bond
1971).
í Evrópu hefur staranum fjölgað
mjög mikið á þessari öld og aukið varp-
svæði sitt (Voous 1960). Landnám hans
á Islandi er dæmi um þessa útbreiðslu-
aukningu. í nyrstu löndum Evrópu er
starinn víðast hvar farfugl en að mestu
leyti staðfugl þegar sunnar dregur
(Voous 1960).
Grein þessi er byggð á ritgerð sem var
hluti af B. S. námi við Háskóla fslands.
Umsjónarmaður var prófessor Agnar
Ingólfsson. Eg vil þakka Finni Guð-
mundssyni og Ævari Petersen sem
veittu mér aðgang að gögnum Náttúru-
fræðistofnunar fslands, auk þess sem
þeir leystu úr mörgum vandamálum
sem upp komu við samningu þessarar
ritgerðar. Einnig naut ég aðstoðar Er-
lings Ölafssonar. Of langt yrði upp að
telja alla þá sem veittu mér upplýsingar
og kann ég þeim öllunt bestu þakkir
fyrir. Agnar Ingólfsson las handritið yfir
og gerði margar þarflegar athugasemdir
og leiðréttingar.
AÐFERÐIll
Þessi grein er að nokkru byggð á
gögnum, sem birst hafa á prenti, og
óbirtum gögnum í spjaldskrá Náttúru-
fræðistofnunar fslands (eftirleiðis
skammstafað N. f.). Auk þess var skrifað
eftir upplýsingum til 26 fuglaáhuga-
manna viðs vegar um landið og bárust
svör frá 19 þeirra. Einnig var almenn-
Náttúrufræðingurinn • 51 (4), 1981 • bls. 145-163, 1981
145
10