Náttúrufræðingurinn - 1981, Blaðsíða 6
300
20
3. mynd. Samanlagður fjöldi og tiðni stara á Kvískerjum í Öræfum í hverjum mánuði árin
1938—1974 (spjaldskrá N. 1.). — Total number and frequency of starling in each month at Kvísker,
SE-Iceland, in the years /938—1974.
sáust starar árlega, einkum þó á haustin
og oft allstórir hópar, t. d. 15 — 20 á
Húsavík 5. 11. 1938, 20 í Vestmanna-
eyjum 27. 1. 1939, 20 í Reykjavík
11.2. 1940 og 70—80 á Kvískerjum í
Öræfum 24. 10. 1943. Starar sáust víða
um landið en þó einkum á Suðaustur-
og Suðvesturlandi.
Líklegt er að starar, sem flækst hafa
til Islands, hafi hrakist af leið frá
Skandinavíu til Bretlands vegna óhag-
stæðra veðurskilyrða. Á haustin fara
starar frá Skandinavíu til Bretlandseyja
og koma þangað frá því siðast í septem-
ber til fyrstu viku nóvember (Witherby
o. fl. 1938). Þetta er í samræmi við
komur stara til íslands, en þeir komu
einkum í október og dvöldust oft vetr-
arlangt, en komu miklu sjaldnar á vorin
og sáust mjög sjaldan á sumrin áður en
þeir fóru að verpa hér (Finnur Guð-
mundsson 1940, 1942, 1944, spjaldskrá
N. í.). Þetta kemur greinilega fram á 3.
mynd.
Eflaust flækjast starar til Islands á
hverju hausti en greinilega mismargir.
Sum ár hefur borið óvenjumikið á þeim
(4. mynd), sem og öðrum flækingsfugl-
148