Náttúrufræðingurinn - 1981, Qupperneq 9
kassa á fiskhúsum við Kirkjusand.
Skoðaði Finnur í kassann þann 15. maí
og var í honum „hálffullgert hreiður,
allfyrirferðarmikið, úr grófum, þurrum
og allstórum grasstráum. Hreiðrið var
heldur losaralegt og ekki haganlega
gert. Varstarinn auðsjáanlega búinn að
yfirgefa hreiðrið“ (F. Guðm. dagbók).
Höfn í Hornafirði, frá 1941
Fyrsta starahreiðrið með eggjum
fannst á fslandi árið 1941 í Ægisíðu-
hólma í Hornafirði en líklega hafa star-
ar byrjað að verpa i Hornafirði nokkru
fyrr. Höskuldur Björnsson (1942) hefur
gert ítarlega grein fyrir landnámi stara í
Hornafirði, en í fyrri hluta júní 1941
fann Sigurður B. Eymundsson hreiður
með 7 eða 8 eggjum „í holu undir
moldarbakka upp á vel mannhæðarhá-
um kletti vestast á eynni“. Þann 12. júli
var aftur kontið að hreiðrinu en þá voru
ungarnir búnir að yfirgefa það. Hösk-
uldur sá stara á Höfn sumurin 1937 —
1940 (Tafla I) og er ekki ósennilegt að
það hafi verið varpfuglar. Þann 25.
ágúst 1940 sá Höskuldur 13 fugla í hóp
og voru 9 þeirra áberandi ljósari en hinir
og hafa það að öllum líkindum verið
ungar. Höskuldur segir að stararnir
hverfi úr joorpinu upp úr miðjum april
en sjáist síðan aftur jtegar líða fer á
sumarið (Tafla I). Sennilegt er að fugl-
arnir, sem sáust í júní — september, hafi
verið hornfirskir varpfuglar og ungar.
Síðar um haustið eru meiri líkur á að
erlendir flækingsstarar hafi blandast
hópnum, t. d. sáust 20 starar í október
1940 en 52 í nóvember. Næstu fregnir af
störum í Hornafirði eru í bréfi dags.
4. 1. 1944, frá Höskuldi til Finns Guð-
mundssonar, en þar segir: „Stararnir
eru hér eins og undanfarin ár og álíka
margir. Veit ég nú með vissu um jtrjá
varpstaði. I Ægisíðuhólma nota þeir
alltaf sama hreiðurstaðinn. Þeirn virðist
vegna vel og aldrei verður vart dauðra
fugla.“ Árin 1946— 1948 verpti starapar
í kletti í landareign Dilksness í Horna-
firði og einnig var þá vitað um tvö önn-
ur hreiður (sbr. bréf frá Eymundi
Björnssyni til Finns Guðmundssonar,
dags. 21. 6. 1948). I bréfi til Finns Guð-
mundssonar (dags. 25. 11. 1952) segist
Eymundur ekki vita um varpstaði með
vissu en hann sjái stara oft í eyjunum á
sumrin. Árið 1954 fann Sigurður B. Ey-
Tafla I. Mestur fjöldi stara séður í hverjum mánuði á Höfn í Hornafirði á árunum 1937 —
1941 samkvæmt athugunum Höskuldar Björnssonar (1942). — Highest number of starlings
obsertied in each month at Höfn l Hornafjördur (SE-Iceland) in the years 1937— 1941.
J F M fl M J J A S O N D
1937 2 32
1938 29 18 18 9 16 24
1939 1 28 37 44
1940 58 12 2 13 20 20 52
1941 52 26 95
151