Náttúrufræðingurinn - 1981, Side 14
Arnessýsla, frá 1976
I Þorlákshöfn verpti starapar í fyrsta
sinn svo vitað sé 1977 í þakskeggi húss
að Reykjarbraut 1 og kom upp ungum
(munnl. uppl. heimamanna). Þann 4. 5.
1978 voru starar að byggja hreiður á
sama stað.
Á Stokkseyri, Eyrarbakka, Hvera-
gerði og Hvolsvelli er ekki vitað til að
starar hafi nokkurn tíma verpt og sjást
þeir þar frekar sjaldan.
Vorið 1977 verpti starapar í þak-
skeggi nýbyggingar við Austurveg á
Selfossi og kom upp 5 ungum. Frá
marsmánuði og fram eftir voru 1978
héldu 30—40 starar sig á Selfossi (Örn
Óskarsson skrifl. uppl.).
Þann 7. 9. 1976 sá Borgþór Magnús-
son 12 stara sem náttuðu sig undir
brúnni á Ytri Rangá við Hellu. Þann
23. 9. 1976 var Borgþór aftur á ferð um
Hellu og frétti þá, að starar hefðu verpt
þar undanfarin ár og vitað væri um þrjú
hreiður. Eg ræddi við fólk á staðnum
þann 4. 5. 1978 og var mér tjáð að starar
hefðu byrjað varp á Hellu 1975, þá eitt
par, en 1977 var vitað um 5 hreiður.
Voru mér sýnd staraegg úr einu hreiðri.
Flestir höfðu stararnir verið veturinn
1977—1978 eða um 30.
Kirkjuból við Stöðvarfjörð 1977
Stari verpti vorið 1977 undir þak-
skeggi á húsi á Kirkjubóli. Heyrðist í
ungunum, en ekki er vitað til þess að
nokkur hafi séð þá né eggin (Steindór
Sighvatsson, munnl. uppl.).
Skagaströnd 1977
1 bréfi til mín, dags. 12. 4. 1978, segir
Páll Jóhannesson, Skagaströnd: „Vet-
urinn 1976—1977 voru hér jnír starar
allan veturinn og ein hjón urpu síöast-
liðið vor í innfellingu við glugga á húsi
hér i þorpinu og komu upp þrem eða
fjórum ungum. I vetur hafa svo verið
hér fjórir starar og núna undir vorið láta
þeir mikið á sér bera með alls konar
skríkjum og söng.“
Hvanneyri 1977—1978
Bjarni Guðmundsson (bréf dags.
27. 4. 1978) segir að starar hafi fyrst
verpt á Hvanneyri 1977. Þá fannst
hreiður með 4 eggjum i jjakrennu ibúð-
arhúss og komust allir ungarnir upp.
Þann 1.4. 1978 sáust 6 starar á Hvann-
eyri. Um vorið gerði eitt par sér hreiður i
öðru húsi en vorið 1977, var þá búið að
loka fyrir inngöngu að gamla hreiðrinu.
Þann 7. 5. 1978 sá ég stara fljúga inn
undir jrakrennu á húsi á Hvanneyri.
Snœfellsnes
Leitað var að störum í Stykkishólmi,
Grundarfirði, Ólafsvík, Rifi og Hellis-
sandi 7. 5. 1978, en þeir sáust hvergi og
enginn vissi til að stari hefði nokkurn
tíma verpt á þessum stöðum.
Á Hellissandi sá Þorsteinn Einarsson
15 stara þann 19. 10. 1959 og 20 þann
17. 2. 1977.1 Stykkishólmi hefurTrausti
Tryggvason athugað fugla frá árinu
1967 og segir í bréfi til mín dags. 19. 3.
1978, að hann hafi séð stara af og til á
vetrum, 1967—1974, oftast 4—6, en
flesta 12. Eftir árslok 1974 hafi hann
hins vegar engan séð.
Blönduós 1978
Kristinn Pálsson segir í bréfi til min
dags. 16. 5. 1978: „Upp úr miðjum apríl
sá ég starahjón hér í „ástarhugleiðing-
um“ (að para sig) á húsi hér í götunni.
Og í gær sá ég annað þeirra fara með
rusl í nefi inn um loftrásarop upp við
156