Náttúrufræðingurinn - 1981, Page 18
milli þessara tveggja náttstaða. Þegar
stararnir koma að Laugardalsvellinum
sveima þeir t. d. oft yfir honum í langan
tíma og taka þá hópar sig oft út úr að-
alhópnum og fljúga í áttina að Fossvogi.
Þann 9. 2. 1978 voru 481 starar á sveimi
yfir stúkunni í einum hópi en af þeim
flugu 134 í 5 smáhópum i áttina að
Skógræktarstöðinni. Þann 23. 2. 1978
flugu 257 fuglar úr hópunum í smá-
hópum í sömu átt en 450 urðu eftir.
Háskólabíó
A norðurgafli Háskólabíós eru járn-
bitar sem starar nátta sig á. Þann 13. 2.
1978 voru þar 10 fuglar, 5. 4. 1978 um
80 fuglar og 120 þann 1. 2. 1979.
Greinilegt er að starar nátta sig þar yfir
veturinn en mismargir og virðist þar
aðeins vera rúm fyrir um 200—300
fugla.
Gufunes
1 turni og á tönkum við aðalhlið
Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi
nátta starar sig. Þann 15. 2. 1978 nátt-
uðu 7 fuglar sig í turninum en um 400
þann 5. 2. 1979. Starfsmaður í Áburð-
arverksmiðjunni, sem Kristinn H.
Skarphéðinsson ræddi við þann 6. 6.
1976, taldi að um 200 starar a. m. k.
dveldu í turninum að næturlagi yfir
veturinn, þó væri þetta nokkuð mis-
jafnt.
Hraðfrystihúsið á Kirkjusandi
Starar hafa náttað sig inni í súð
hraðfrystihússins síðustu árin, líklega
oftast nálægt 100 fuglar, yfir vetrar-
mánuðina. Lokað var fyrir inngöngu
staranna seint á árinu 1980.
Símstöðin við Suðurlandsbraut
Þann 1. 3. 1975 sá Árni Einarsson um
100 stara á flugi mjög hátt yfir loftnets-
turninum en þeir tíndust síðar smám
saman niður undir jjakskeggið á sím-
stöðinni. Ekki er mér kunnugt um að
starar hafi náttað sig þar síðan.
Stofnstœrð slara í Reykjavík
Talningar í Skógræktarstöðinni í
Fossvogi og í stúku Laugardalsvallar í
febrúar og mars gefa um 1000 fugla.
Vitað er að starar nátta sig víðar, en
athuganir benda til þess að það sé ekki
mikill fjöldi, og sennilega innan við
1000 fuglar. Mjög líklegt er því að fjöldi
varppara í Reykjavík sé 500—1000 að
vori.
Ef reiknað er með að 500 pör nátti sig
í Skógræktarstöðinni og í stúkunni að
vori og dreifist síðan um bæinn og verpi
að meðaltali 5.2 eggjum, 82% klekist og
69% unganna verði fleygir (Jolmson
1971) þá væru um 2470 starar að hausti
(þá er ekki tekið tillit til vanhalda hjá
fullvöxnum fuglum). Fjöldi stara í
Skógræktarstöðinni í ágúst 1975 og í júlí
1977 var áætlaður um 2500 (Tafla II).
Talningar sem líffræðinemar við Há-
skóla íslands hafa gert í apríl 1975,
1977, 1979 og 1980 benda til þess að
fjöldi varppara i Reykjavik geti verið
urn 1000 (Agnar Ingólfsson pers. uppl.).
LOKAORÐ
Hér að framan hefur verið fjallað al-
mennt um sögu starans á Islandi.
Nokkuð öruggt má teljast, að starar hafi
hrakist hingað öldum saman.
160