Náttúrufræðingurinn - 1981, Side 22
C. A. Galbraith og P. S. Thompson:
Flóastelkur (Tringa glareola)
varpfugl á Islandi
Flóastelkur er lítill, gráleitur vaðfugl,
u. þ. b. 20 sm á lengd (sjá 1. mynd).
Hann er náskyldur stelknum (Tringa
totanus), sem er algengur varpfugl hér á
landi. Flóastelkur er minni en stelkur,
með brúnt bak, alsett hvítum smádílum,
en hvitflikrótt stél. A flugi er hvítur
gumpurinn áberandi og sést þá einnig,
að fæturnir ná vel aftur fyrir stélið.
Ólíkt stelki, er flóastelkur ekki með Ijós
vængbelti.
Flóastelkurinn er útbreiddur varp-
fugl í gamla heiminum. Verpur hann
um alla Skandinavíu og Sovétríkin allt
austur til Kamtsjatka. í Evrópu liggja
suðurmörk útbreiðslusvæðisins um
Danmörku og Vestur-Þýskaland (Glutz
von Blotzheim o. fl. 1977). Vestustu
varpstöðvar flóastelksins eru í Skotlandi
(Nethersole — 'Fhompson 1971). Þar eru
þó aðeins fáein pör, en varppör hafa
fundist mest á fimm stöðum sama árið
(Sharrock 1976).
Varpkjörlendi tegundarinnar eru
mýramóar, svo og mýrablettir í skógar-
rjóðrum (Sharrock 1976). Þar eð flóa-
stelki hefur reynst erfitt að aðlaga sig
aukinni ræktun, hefur hann horfið af
mörgum svæðum i Mið- og Vestur--
Náttúrufræðingurinn, 51 (4), bls. 164—168, 1981
Evrópu (Voous 1960). Þó má einnig
benda á jaað, að ]:>essi landsvæði eru á
syðstu mörkum útbreiðslu tegundar-
innar, en fuglastofnum á jaðarsvæðum
er yfirleitt hættara við að deyja út.
VARP STAÐFEST Á ÍSLANDI
Þann 26. júní 1981 sáum við flóa-
stelkspar við norðanvert Mývatn. Á
j^essum stað er mýrlent og nokkrar
smátjarnir. Gróðurinn er aðallega starir
og grös en mosi í undirgróðri. Svæðið er
lítið um sig en engu að síður urpu jjar
mörg pör stelka, óðinshana (Phalaropus
lobatus), lóujDræla (Calidris a/pina) og
heiðlóa (Pluvialis apricaria). Einnig sáum
við smyril (Falco columbarius), einn
kvenfugl, á svæðinu, marga steindepla
(Oenanthe oenanthe) og þúfutittlinga (An-
thus pratensis).
Ofangreindan dag urðum við fyrst
varir við flóastelk jjar sem hann sat á
hraunsnös. Gaf hann frá sér lágvært
hljóð og hossaði hann sér með stélrykkj-
um að hætti flóastelka. Stuttu seinna
flaug fuglinn upp og settist rétt hjá
okkur. Hegðaði hann sér eins og hann
lægi á eggjum. Þannig gekk i um
stundarfjórðung, og færði fuglinn sig
164