Náttúrufræðingurinn - 1981, Side 34
eru þau 600-700 m þykk og liggja. undir
móberginu, sem eyjarnar sjálí'ar eru
gerðar úr. Undir Vík eru setlögin tæp-
lega 300 m þykk (Margrét Kjartans-
dóttir, munnl. uppl.). Ekki er vitað um
aldur setlaganna. Neðan þcirra taka við
basalthraunlög með rauðum milli-
lögum. Þessi setlög, eða að minnsta
kosti setlögin í Vík, liggja of grunnt til
þess að geta verið sömu lögin og valda
lághraðalaginu. Verður því að gera ráð
fyrir að setlögin sem valda lághraða-
laginu séu neðan basaltmyndananna í
borholunum, að minnsta kosti í holunni
í Vík.
Steingervingarnir í Skammadals-
kömbum eru mun eldri en móbergið
sem þeir finnast í. Jóhannes Askelsson
(1960) hefur gert samanburð á
steingervingunum í Skammadals-
kömbum og Tjörneslögunum og komist
að þeirri niðurstöðu að skeljarnar í
Skammadalskömbum megi bera saman
við tígul- og krókskeljalögin í Tjörnes-
lögunum, þó einkum þau síðarnefndu.
Hraunlög ofan á krókskeljalögunum
(Höskuldarvíkurbasaltið) hafa verið
aldursgreind og reynast vera um 2,5
milljón ára gömul (Kristinn Albertsson
1978). Mót krókskelja- og tígulskelja-
laganna eru talin vera ámóta gömul og
opnun Beringssunds (Þorleifur Einars-
son o.fl. 1967) eða eitthvað yfir 3 millj-
ón ára gömul. Því er ekki fjarri lagi að
áætla aldur setlaganna undir Skamma-
dalskömbum 2,5-3,0 milljón ára.
Neðra borð setlaganna er á 1,5-2,7
km dýpi og elsti hluti setlaganna undir
Skammadalskömbum er liðlega 3 millj-
ón ára. Með því að gera ráð fyrir að
bergið undir setlögunum hafi myndast
ofan sjávarmáls og setlögin séu
jafngömul undir öllum mælilínum, má
reikna meðalsighraða af völdum upp-
hleðslu jarðlaga jarðskorpunnar á þess-
um slóðum. Er hann 5-9 mm á ári.
Sighraðinn hefur verið metinn á hlið-
stæðan hátt út frá borholum á
Reykjanesi og reyndist hann þar meiri
en 5 mm á ári (Sveinbjörn Björnsson
o.fl. 1972).
5. LOKAORÐ
Hér að í'raman hafa verið leiddar að
því líkur að allvíðáttumikil setlög liggi
undir suðurströndinni. Lesandinn ætti
að hafa í huga, að þetta er ekki einhlít
túlkun á niðurstöðum mælinganna,
heldur einungis sú lausn sem líklegust
er. Talsvert umfangsmiklar mælingar
þyrfti til viðbótar ef fá ætti úr því skorið
svo öruggt sé.
Mæligögnin sem notuð eru í þessari
grein eru fengin frá dr. Guðmundi
Pálmasyni hjá Orkustof'nun. Kann ég
honum bestu þakkir fyrir.
Urvinnsla gagnanna fór fram við Há-
skólann í Björgvin. Flyt ég dr. Reidar
Kanestrom dósent þar bestu þakkir
fyrir veitta aðstoð. Þá las Sigmundur
Einarsson jarðfræðingur handrit
greinarinnar yfir og færði sitt hvað til
betri vegar og Auður Ágústsdóttir
tækniteiknari annaðist frágang mynda.
Kann ég þeim bestu þakkir f’yrir.