Náttúrufræðingurinn - 1981, Síða 43
2. mynd. Hypogymnia tubulosa, eintök frá Tungufellsskógi við Hoffell. — Hypogymnia
tubulosa, samples from Hoffell.
Lóni (leg. Sigríður Baldursdóttir 1979)
á birki. Þetta mun vera fyrsti fundur
hér á landi á birki, en erlendis vex þessi
tegund nokkuð jöfnum höndum á trjám
og grjóti.
Cetraria pinastri (Scop.) S. F. Gray.
Smávaxin blaðflétta, aðeins 0,5—2
cm í þvermál, bleðlar 0,3—0,5 mm
breiðir, gulgráir að lit með skærgulum
útbrotum á jöðrunum. Neðra borð
bleðla gráleitt eða hvítt og rætlingar
nærri miðju. Hefur að geyma vulpin-
sýru og pinastrin-sýru, sem báðar eru
gul litarefni.
Þessi tegund, sem er ný á íslandi,
hefur fundist á þrem stöðum í Austur-
Skaftafellssýslu. Fyrst fannst hún í
hlíðinni innan við Hoffell í Hornafirði
(leg. Hörður Kristinsson 1979), síðan í
Austurskógum í Lóni (leg. Sigríður
Baldursdóttir 1979, og að lokum í
Steinadal í Suðursveit (leg. Hálfdán
Björnsson 1981). Öll eintökin voru á
birki.
Evemia prunastri (L.) Ach.
Blaðflétta með 1—3 mm breiða,
marggreinda, meira eða minna upp-
rétta bleðla, sem eru grágrænir til gul-
leitir og kúptir eða flatir á efra borði, en
hvítir og íhvolfir að neðan, rætlinga-
lausir. Kringlótt útbrot (soralia) eru
hér og hvar á efra borði, einkum jöðr-
unum. Fljótt á litið kemur þessi tegund
fyrir sjónir sem runnkennd fremur en
blaðkennd.
Þessi tegund er ný fyrir landið, að-
eins fundin í Steinadal (leg. Hálfdán
Björnsson 1981), á birkigreinum.
185