Náttúrufræðingurinn - 1983, Qupperneq 223
ar fræðsluferðir til náttúruskoðunar, þrjár
eins dags ferðir og ein þriggja daga ferð.
Þátttakendur í ferðunum urðu alls 160,
flestir í löngu ferðinni 115. Ferðirnar voru
þessar:
Sunnudaginn 17. maí var farin fugla-
skoðunarferð út á Reykjanesskaga. Þátt-
takendur voru 25 og leiðbeinandi Erling
Ólafsson.
Föstudag 3. - sunnudags 5. júli var farið
í löngu ferðina. Fyrsta daginn var ekið
austur í Núpsstaðarskóg og tjaldað þar
undir Eystrafjalli. Annan daginn var þátt-
takendum skipt. Gengu sumir að Súlutind-
um, aðrir inn að Grænalóni og enn aðrir
upp með Núpsá. Margt var að skoða og
nutu flestir eða allir ferðarinnar vel enda
veður hið besta, sólskin og blíðviðri.
Þriðja daginn var ekið heim með viðkomu
hjá Lómagnúpi og á Núpsstað. Þátttakend-
ur voru 115 og fararstjórar auk formanns
þeir Erling Ólafsson, Haukur Jóhannesson
og Jón Jónsson og raunar fleiri.
Sunnudag 16. ágúst\ar farin steinaskoð-
unarferð í Hvalfjörð. Þátttakendur voru 15
og fararstjóri Þorleifur Einarsson. Hljóp
hann í skarðið fyrir þá fararstjóra sern
upphaflega áttu að stjórna þessari ferð.
Sunnudag 6. september var farin jarð-
fræðiferð í Skarðsheiði. Veðurútlit var
slæmt og þátttakendur urðu einungis 5.
Fararstjóri var Hjalti Franzson.
Stjórnin þakkar af alhug öllum sem að-
stoðuðu hana við skipulagningu ferðanna
og fararstjórn. Félagið á þar ýmsa hauka í
horni sem ávallt bregðast vel við, þegar til
þeirra er leitað og verður það seint full-
þakkað.
ÚTGÁFUSTARFSEMI
Af tímariti félagsins, Náttúrufræðing-
num, komu út 2 hefti á árinu, alls 277 bls.
Þetta voru 2. hefti og 3-4. hefti 50. árg.
Tvöfalda heftið var sérhefti tileinkað jarð-
hitanum og inniheldur eingöngu greinar
unt það efni. Hægt gengur að ná upp þeim
undandrætti sem orðið hefur á útgáfunni
(1 ár á eftir), en vissulega er það áhugamál
stjórnar og ritstjóra að það megi takast.
Engar breytingar eru á ritnefnd. Ritið er
prentað í prentsmiðjunni Odda, en hún
flutti í nýtt húsnæði á s. 1. ári og eru allar
tafir sem af því hlutust yfirunnar nú.
FJÁRHAGUR
Reikningar félagsins sýna góða fjárhags-
stöðu þetta síðasta ár. Munar þar mestu að
útgáfu 1-2. heftis af 51. árgangi Nátt-
úrufræðingsins seinkaði framyfir áramót.
Ekki var annað að merkja af viðbrögðum
félagsmanna við síðustu hækkun, en þeir
tækju henni vel, því að innheimta mun
hafa verið með eðlilegu móti. Þess ber að
geta að síðustu 2 árgangar Náttúrufræð-
ingsins hafa verið allmiklu stærri að
blaðsíðnafjölda en oftast áður, raunar svo
munar heilum árgangi.
NÁTTÚRUVERNDARÞING OG
LANDVERNDARFUNDUR
Náttúruverndarþing var haldið dagana
21-23 apríl 1981. Náttúrufræðifélagið á
þar einn fulltrúa og var Guttormur Sig-
bjarnarson, jarðfræðingur valinn til þess af
hálfu stjórnarinnar að þessu sinni. Þá var
þann 20. mars haldin á vegum Landvernd-
ar ráðstefna á Kjarvalsstöðum um um-
hverfi og útivist í þéttbýli. Guttormur sat
einnig þá ráðstefnu, útnefndur til þess af
stjórn félagsins.
FLÓRA ÍSLANDS
Lokið hefur verið við skrá yfir allar teg-
undir, ættkvíslir og ættir sem fjallað verður
um í IV. útgáfu Flóru íslands, en það verk
var langt komið þegar aðalfundur var hald-
inn í fyrra. Þar verða tegundir auðkenndar
eftir því hvort þær vaxa hér villtar, eru
ræktaðar víða, eru algengar sem slæðingar
eða hefur verið getið héðan en ekki þyki
fullvíst að þær vaxi hér.
Nokkrir ákvarðanalyklar sem lokið var
við að endurskoða í fyrra (t. d. yfir grös og
starir) voru reyndir úti í náttúrunni s. 1.
sumar og virtust breytingar sem á þeim
höfðu verið gerðar greinilega vera til bóta.
Síðastliðinn vetur var svo nokkuð unnið að
endurskoðun á lýsingu tegunda og ætta og
verður því verki haldið áfram af fullum
krafti næstu mánuði.
í vor og sumar verða nokkrir fleiri
ákvarðanalyklar reyndir frekar og aflað
upplýsinga sem enn vantar um útbreiðslu
nokkurra tegunda.
203