Náttúrufræðingurinn - 1987, Page 16
SCOYENIA
8. mynd.
Dreifing fara og spora eftir myndunarstöðum (ásýndum). - General distribudon of ichnofacies.
lagskiptinguna. Hæð faranna er 8-10 sm
og breiddin 3-4 sm og eru þau skýrt af-
mörkuð frá setinu umhverfis, en jaðrar
þeirra eru skarpir, ljósari en setið um-
hverfis og úr samlímdum setkornum.
Við báða enda faranna er sporöskjulaga
trekt, sem liggur nær lóðrétt ofan í setið,
en út frá trektinni skiptast á ljós og dökk
bönd og sveigja þau ýmist að eða frá end-
unum (2., 3. og4. mynd). í lóðréttu sniði
sjást þessi bönd einnig, ýmist sveigð í átt
að yfirborði eða niður á við. Dökku
böndin eru úr svipuðum sandsteini og
setið umhverfis förin. Ljósu böndin eru
úr fínkornóttara seti og eru kornin sam-
límd líkt því sem er í veggjum faranna.
Allt útlit og bygging faranna bendir til
þess, að setæta hafi myndað þau og því sé
um fæðuför að ræða. Sambærileg för
hafa fundist í mjög misgömlum jarðlög-
um. Elstu för af þessari gerð eru frá upp-
hafi fornlífsaldar, um það bil 600 milljón
ára gömul, en þau hafa einnig fundist
víða um heim í yngri jarðlögum og nú-
tímamyndunum. Einkum eru þau algeng
í setlögum mynduðum á töluverðu dýpi
eða í skýldum umhverfum, þar sem orka
er lítil t.d. í Cruziana- ásýndinni. Hafa
þau verið nefnd Teichichnus til aðgrein-
ingar frá öðrum förum. Setbygging
110