Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1988, Page 20

Náttúrufræðingurinn - 1988, Page 20
6. mynd. Þjórsárhraunið þangi vaxið út af Eyrarbakka. - The Pjórsá lava covered by seaweed at Eyrarbakki harbour. (Myná/photo Árni Hjartarson). urinn sem út kemur er því raunverulegur aldur í almanaksárum talinn. Öðru máli gegnir um geislakolsárin, þau hafa reynst vera lengri en almanaks- árin. Aldursgreiningastofur reikna ætíð með að helmingunartími geislakolsins (C-14) sé 5570 ár þótt vitað sé að raun- verulegur helmingunartíimi þess sé ná- lægt 5730 árum. Að auki þarf að leiðrétta aldurinn vegna þess að C-14 innihald lofthjúpsins er dálitlum breytingum und- irorpið frá einum tíma til annars. Þegar þetta tvennt er haft í huga þarf að bæta um 780 árum við sýni sem mælist 7800 ára með geislakolsgreiningu, til að fá raunverulegan aldur (Bruns o. fl. 1983). Með þessum reikningum verður aldur sýnisins undan Þjórsárhrauni í Árnesi 8580±140 ár. Þarna munar aðeins 120 árum. á aldursgreiningaraðferðunum, sem er vel innan skekkjumarka. Það er því mjög sennilegt að ummerkin í Græn- landsísnum um gosið mikla séu frá Þjórsárhraunsgosinu komin. Ekki eru enn öll kurl komin til grafar, sem varða þetta mesta hraungos nútím- ans. Útbreiðsla og rúmmál hraunsins eru innan all stórra óvissumarka, veðurfars- leg og gróðurfarsleg áhrif gossins eru óþekkt með öllu og um eldstöðvarnar má nota orð Jónasar Hallgrímssonar, sem hann skrifaði í dagbók sína fyrir hálfri annarri öld: „Hvorfra denne Lava- ström hidrörer, det er endnu uafgjort“. 14

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.