Náttúrufræðingurinn - 1988, Síða 24
1. mynd. Skeggþerna í
Garði 30. apríl 1987. Takið
eftir kríulegu höfði, dökk-
um kviði og dökkum
vængendum. - Whiskered
Tern in Garður 30 April
1987. Notice the Arctic
Tern-like head, dark belly
and dark wing-tips.
(MyndIphoto Kristján Lill-
iendahl).
að henni. Því gafst okkur kostur á að
virða hana vel fyrir okkur bæði með
sjónaukum (8-10x stækkun) og fjarsjám
(22 x stækkun), auk þess sem teknar
voru myndir af fuglinum. Minnsta fjar-
lægð í fuglinn var um 30 m.
Skeggþernan dvaldist á þessu sama
svæði í um fjórar vikur og sá hana fjöldi
manns. Síðast fréttum við af henni þann
24. maí og virtist hún þá vera í fullu fjöri
(Erling Ólafsson munnl. uppl.).
Við teljum að skeggþernan hafi verið
fullorðin, tveggja ára eða eldri. Þar sem
ekki er hægt að greina tveggja ára fugla
frá eldri fuglum er einungis þörf á að
velta fyrir sér þeim möguleika að fuglinn
hafi verið eins árs. Búningur fuglsins og
varptími tegundarinnar í Evrópu útilok-
ar að þetta hafi verið ungi frá árinu. Tal-
ið er að flestir eins árs gamlir fuglar
dveljist á vetrarstöðvum tegundarinnar
og séu þá í vetrarbúningi (Mees 1977).
Fuglinn var í næstum því fullkomnum
varpbúningi. Hugsanlegt er að eins árs
fuglar komi norður að vori og fari í varp-
búning. Vegna litarmunar á endum
handflugfjaðra, sem áður er getið, eru
þó hverfandi líkur á því að umræddur
fugl hafi verið eins árs. Þessi litarmunur
stafar af því að fjaðrirnar eru misgamlar
og eru fjaðrir með dökka enda eldri en
fjaðrir með ljósa enda. Eins árs gamlir
fuglar eru með jafngamlar, og því jafn-
litar, handflugfjaðrir (Cramp 1985).
Undirtegundir skeggþernu eru þrjár. í
Astralíu verpir C.h. javanicus og í suður-
og austurhluta Afríku verpir C.h. dela-
landii. Fuglinn sem hér sást er sennilega
C.h. hybridus en sú undirtegund verpir í
sunnanverðri Evrópu, norður Afríku og
allt austur í Kína (Mees 1977, Cramp
1985).