Náttúrufræðingurinn - 1988, Blaðsíða 28
1. mynd. Súgandafjörður og snið af setlögunum í Botni. - Súgandafjörður, Northwest
Iceland, and the sediments in Botn. 1. Basalt. 2. Sandstone. 3. Tephra. 4. Lignite. 5. A thin
layer of lignite. 6. A piece of lignite.
er dökkgrár til rauðleitur sandsteinn
með einstaka dreifðum surtarbrandsflís-
um. Blágrýtislagið ofan á setinu er
smástuðlað og kubbabergslegt og hefur
það sennilega storknað hratt vegna þess
að hraunið rann út yfir mýrlendi eða í
grunnt vatn. Ekki er ósennilegt, að setið
hafi einmitt safnast fyrir í grunnu vatni,
sem bföð og aðrar jurtaleifar bárust út í
með vatni og vindum. Jarðlagasniðið,
sem hér hefur verið greint frá, er í góðu
samræmi við lýsingu sem Freysteinn Sig-
urðsson og Kristján Sæmundsson birtu
1984.
Sumarið 1917 var byrjað að vinna surt-
arbrand í Botni og var eftirtekjan það
árið eitt tonn af kolum eftir hver þrjú
dagsverk (Guðmundur G. Bárðarson
1918). Botnsnáman varð aldrei neitt
gróðafyrirtæki, en síðast voru unnin þar
kol í seinni heimsstyrjöldinni á árunum
1940-1942 (Jóhannes Áskelsson 1942).
Námugöngin eru ekki hrunin saman, en
náman er nú full af vatni því að gerð
hefur verið smástífla í námuopinu og
fæst þannig miðlunarlón fyrir heimilis-
rafstöð og frýs það aldrei. Aðalgöngin ná
um 100 m inn í fjallið, en með hliðar-
22