Náttúrufræðingurinn - 1988, Síða 43
Jörundur Svavarsson
og Stefan Mattson:
Nýjar sambýlis- og sníkju-
krabbaflær fundnar við ísland
Það hefur Iengi verið þekkt að ýmis
krabbadýr (Crustacea) lifa í sambýli
við aðrar lífverur, eða jafnvel sníki á
þeim. Flest af þessum dýrum tilheyra
flokknum Copepoda, þ.e. eru krabba-
flær, eins og hin algenga rauðáta.
Þekktar eru nokkuð yfir þúsund teg-
undir sníkju- og sambýliskrabbaflóa.
Sambýlis- og sníkjudýr eru þó ekki
jafn algeng innan allra ættbálka
krabbaflóa. Sambýlisdýr er einkum að
finna innan ættbálksins Cyclopoida,
en innan ættbálkanna Siphonostoma-
toida og Poecilostomatoida eru ein-
göngu sníkjudýr. Sníkjulífi eða sam-
býlislifnaðarhættir fyrirfinnast ekki
innan ættbálks rauðátunnar, Calan-
oida, og aðeins fáeinar tegundir
Harpacticoida (botnkrabbaflær) lifa í
sambýli við aðrar lífverur.
Hýslar krabbaflóa eru fjölbreytileg-
ir. Fjöldi tegunda hefur fundist í eða á
fiskum, burstaormum (Polychaeta),
lindýrum (Mollusca), skrápdýrum
(Echinodermata), möttuldýrum (Tuni-
cata) og einnig í eða á öðrum krabba-
dýrum. Sníkju- og sambýliskrabbaflær
hafa oft ákaflega furðulega líkams-
byggingu og fátt eitt bendir til upp-
runa þeirra. Enda er algengt að þær
lifi meginhluta lífs síns innan í hýsli og
nærist á fæðu hans eða á honum sjálf-
um. Lirfur (nauplius) krabbaflónna
eru þó hefðbundar í útliti og líkjast
lirfum annarra krabbaflóa. Karldýr
eru oft ósérhæfðari og smærri en
kvendýr.
í hefti 34 í 3. bindi safnritsins Zoo-
logy of Iceland er fjallað um sníkju-
og sambýliskrabbaflær við ísland
(Stephensen 1940). Þar er getið 44
tegunda, sem flestar sníkja á fiskum,
en aðeins 10-11 tegundir eru sníkju-
eða sambýlisdýr hryggleysingja.
Astæður þess að svo fárra dýra í sam-
býli við hryggleysingja er getið hér-
lendis eru margar, en megin ástæðan
er eflaust að þessari grein dýrafræði
hefur ákaflega lítið verið sinnt hér-
lendis.
Hér verður greint frá tveimur
krabbaflóategundum áður óþekktum
hér við land. Þær lifa í tengslum við
hryggleysingja, hvor um sig á sinn sér-
staka hátt. Dýrunum var safnað af
Jóni Bogasyni og kunnum við honum
bestu þakkir fyrir að leyfa okkur að
skoða þau. Þessi dýr eru Schizo-
proctus inflatus Aurivillius, 1885 og
Asterocheres lilljeborgi Boeck, 1859.
Náttúrufræðingurinn 58 (1), bls. 37-41, 1988
37