Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1988, Side 53

Náttúrufræðingurinn - 1988, Side 53
ég á við með annarlegum áherslum eða skoðunum á eðli íslenskrar eldvirkni lýtur að þekkingu höfundar og því hugarfari sem hann nálgast fræðin með eða afmörk- uð svið þeirra og hugtök. Ég sé þess nokk- ur dæmi í bókinni, ekki síst þessum fyrsta kafla, að afstaða höfundar til einstakra atriða er undarleg að mínu mati og þess eðlis að hún leiðir ekki til einfaldrar eða skýrrar myndar af íslenskri eldvirkni, en það verður alþýðlegt fræðirit að leitast við að gera eftir fremsta megni. í nokkrum tilvikum á þetta sér rætur í ofureinföldun- um og alhæfingum. En einnig gerist það í nokkrum tilvikum að áherslur eru lagðar þannig að veigamikil atriði fræðanna verða útundan að kalla og heildarfrásögn- in af þeim ástæðum slakari en ástæða er til. Ég skal reyna að skýra þetta með dæmum. Eitt meginhugtak bókarinnar er eld- stöðvakerfi. Um útskýringu á þessu hug- taki finnst mér ábótavant og notkun þess alls ekki óumdeilanleg. í hugtakaskýring- um á bls. 116 er hugtakið skýrt svona: „Eldstöðvakerfi: Sprunguþyrping (sprungubelti, sprungukerfi, sprungurein, sprunguhvirfing) með gígaröðum og oftar með megineldstöð en ekki.“ Á bls. 5 er gerð grein fyrir dreifingu kerfanna innan gosbelta landsins og þar segir: „Eldstöðva- kerfin eru samsafn stórra og lítilla eld- stöðva og brotalína í jarðskorpunni. Kerf- in eru yfirleitt aflöng og er aflsmiðja þeirra oft megineldstöð með kvikuþró." Á bls. 20 segir: „Nú orðið er talið algengt að sprungugosin stafi af því að kvika rennur úr kvikuhólfi og eftir sprungum neðan- jarðar og geti svo komið upp jafnvel tug- um kílómetra til hliðar við kvikuhólfið eða megineldstöð þá sem kann að vera miðja kerfisins." í heild eru þessar tilraunir til skilgreiningar á hugtakinu og lýsingar þess frekar ófullkomnar. Inn í þessa mynd er bætt öðru hugtaki, aflsmiðju eða miðju, sem á ekkert skylt við kraftafræði eða rúmfræðilega miðju og er síst til þess fallið að skýra hugtakið. Þetta er nýtt hugtak í eldfjallafræðum, en hér er það ekki skil- greint eða ljóst útlistað. Það þvælist um texta allrar bókarinnar, en hlutverk miðj- unnar í kerfinu verður aldrei ljóst. Ef höf- undi er ekki ljóst hlutverk miðjunnar í kerfinu er náttúrulega ekki von til þess að hann geti skilgreint það. En til hvers þá að vera að nota það? Að því er ég best veit, var það breski eldfjallafræðingurinn G.P.L. Walker, er um langt árabil vann hér að rannsóknum, einkum Austurlandi, og opnaði marga nýja sýn í jarðfræði íslands, sem fyrstur kom með hugtökin „dyke swarm" (ganga- sveimur) og „central volcano" (megineld- stöð) inn í íslenska jarðfræðiumræðu og lýsti þessum fyrirbærum úr tertíera jarð- lagastaflanum á Austfjörðum árin 1959 og 1963. íslensku orðin um þessi fyrirbæri komu svo fyrst fram í 1. útg. af jarðfræði- kennslubók Þorleifs Einarssonar 1968. Ár- ið 1971 mun svo Kristján Sæmundsson fyrst hafa notað á prenti hugtakið sprungusveim- ur um virku sprungubeltin á rekbeltunum, sem samsvörun gangasveimanna í eldri jarðlögum. Árið 1983 benti Kristján á að þessi hópun sprungna og gosstöðva í ákveðnar reinar hefði komið fram á korti Guðmundar G. Bárðarsonar af jarðfræði Reykjanesskagans, sem hann gerði snemma á þessari öld og kynnti á móti norrænna jarðfræðinga árið 1929. Illu heilli hefur þetta kort aldrei verið gefið út. Það mun nú vera býsna algeng skoðun meðal íslenskra jarðvísindamanna að þessi tvö fyrirbæri, sprungusveimur og megin- eldstöð, séu stig í þróunarsögu íslenskra eldstöðva á reksvæðunum. Þetta var, að því er ég best veit, fyrst sett fram af Guð- mundi E. Sigvaldasyni og samstarfsmönn- um hans árið 1976. Sveinn P. Jakobsson mun svo hafa notað um þetta enska nafnið „volcanic system“ árið 1979 en það hefur fengið íslensku þýðinguna eldstöðvakerfi. Það er því ekki rétt, sem látið er að liggja á bls. 8, að hugtakið eldstöðvakerfi eigi sérlega uppruna sinn að rekja til Kröflu- kerfisins eða Kröfluelda síðustu ára. Að baki þessu orði er margþætt rannsókna- saga, eins og yfirleitt er í vísindum. Orðið sjálft er einungis lokaatriði í sögunni, ef henni er þá á annað borð lokið. Snemma á þróunarferli svona kerfis, en einungis þeirra sem eru á rekbeltunum, myndast sigdalur með opnum gjám og gígaröðum og framleiðir það þá nær ein- 47

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.