Náttúrufræðingurinn - 1988, Page 54
göngu frumstæð basölt í eldgosunum.
Þetta er hið dæmigerða sprungusveims-
stig. Er líður á þróunarsögu kerfisins,
breytist samsetning kvikunnar, basöltin
verða þróaðri sem kallað er, gosvirknin
safnast meir saman á afmarkað svæði inn-
an hins upphaflega sprungusveims og jarð-
hitakerfi fara að koma fram á yfirborðinu.
Gosin virðast jafnframt fara minnkandi
um leið og þeim fjölgar. Þetta er eins kon-
ar millistig í þróuninni. En við þetta bygg-
ist gjarnan upp einhvers konar fjallaklasi
eða bálkur, einhvers staðar innan kerfis-
ins, þar sem framleiðnin er mest. Þetta
kallast megineldstöð. Eftir að hún verður
áberandi fyrirbæri á þessu kerfi er ísúr og
einkum súr bergkvika gjarnan farin að
berast til yfirborðsins í eldgosum. Kviku-
kerfið undir eldstöðvakerfinu hefur tekið
verulegum breytingum engu síður en yfir-
borðsfyrirbærin og ferlin, sem að þeim
standa. Megineinkenni þessara breytinga í
kvikukerfinu er að margra dómi það að til
verður kvikuhólf undir megineldstöðinni á
litlu dýpi. Þar er ætíð til staðar umtalsvert
magn af bergkviku nærri yfirborði, sem
ekki var áður. Ef þetta hólf nær upp á
verulega lítið dýpi getur svo farið að þak
þess bresti og jarðskorpan sígi ofan í
kvikuhólfið um leið og kvikan streymir úr
því og þar verður þrýstingsléttir, venjulega
í stórgosi. Þá verður til askja í eldstöðinni.
Þannig myndaðist Öskjuvatn í og eftir gos-
ið 1875. Þannig er í stuttu og einfölduðu
máli þróunarsaga eldstöðvakerfis. Eld-
stöðvakerfi, sem eru á reklausu gosbeltun-
um, þróast öðruvísi og haga sér í flestum
atriðum á annan hátt. Um það vitum við
þó miklu minna, meðal annars vegna þess
að þau eru flest ekki eins virk og kerfi rek-
beltanna. Auk þess hafa þau ekki verið
jafn mikið rannsökuð á síðustu árum, þeg-
ar frá er talin Hekla.
Mér sýnist það einna helst vera van-
hæfni höfundar til þess að sjá fyrir sér þró-
unarsögu eldstöðvakerfis og tilhneiging
hans til alhæfinga um, að öll eldstöðva-
kerfi landsins séu eins, hagi sér eins og séu
helst öll á sama stigi þróunar eða aldurs og
að jafn mikið sé vitað um þau öll, sem
veldur því að frásögn hans verður hvorki
skýr né einföld og að heildarmyndin af
eldstöðvakerfi verður ekki sannfærandi.
Nú er það fjarri því að eldstöðvakerfin séu
jafn lík innbyrðis og bókin gefur til kynna.
Mismunur þeirra er í raun svo mikill í viss-
um tilvikum að ég tel afar hæpið að það sé
gerlegt að troða þeim öllum undir sama
hatt. Það er ljóst að veigamikill munur er
á flestum þáttum eldvirkninnar eða öllum
á rekbeltunum og svo hinum beltunum
þar sem rek á sér ekki stað. Þetta ætti í
sjálfu sér að vera nægjanlegt til þess að
menn fari með gát í alhæfinguna um þessi
kerfi. Hvað er t.d. líkt með Snæfellsjökli
og Kröflu, þegar að er gáð? Sú ákvörðun
að halda stíft við eldstöðvakerfi sem
ramma að umfjölluninni, leiðir til þess að
einstakar eldstöðvar frá umræddu 10.000
ára tímabili falla í skuggann af kerfinu,
sem þeim er komið fyrir í. Þær fá því
ómerkilega umfjöllun og myndin af fjöl-
breytileika íslenskrar eldvirkni verður fá-
tæklegri. Ég nefni hér af handahófi jafn
ólíkar eldstöðvar og Eldgjá, Skjaldbreið,
Grænavatn, Valagjá, Hverfjall og Hraun-
bungu.
Annað atriði sem ég er ekki sáttur við
er meðhöndlun höfundar á rekbeltum og
gosbeltum, þ.e.a.s. skipting hinna eld-
virku svæða í einingar með ólíka virkni og
sem gegna ólíku hlutverki í heildarþróun
jarðskorpunnar. Öll eldvirk svæði á land-
inu ganga yfirleitt sameiginlega undir
nafninu gosbelti. Það er því ótækt að kalla
aðeins hluta þeirra þessu nafni. Rekbelti
og reklaus væri nær lagi, ef nota á land-
rekið til að greina þau að. En hvað er líka
rekbelti að gera frá Skjaldbreið norður um
Langjökul, ef þverbrota- og jarðskjálfta-
beltið, sem hliðrar landrekinu, liggur um
lágsveitir Suðurlands?
A bls. 10 kemur í ljós að þau belti, sem
Ari Trausti kallar gosbelti, eru líka hliðar-
gosbelti. Það hugtak er hins vegar hvergi
skilgreint. Til hliðar við hvað er það og
hvers vegna? Hvernig er virkni þess frá-
brugðin virkni annarra belta? Mér sýnist
hér vera hið sama uppi á teningum og áð-
ur um „miðjuna"; illa hugsað og óskil-
greint hugtak er sett í umferð í textanum
og leiðir einungis til ruglingslegrar frá-
sagnar, mest vegna þess að höfundur hef-
ur takmarkaðan áhuga á ferlum þeim sem
48