Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1959, Side 33

Náttúrufræðingurinn - 1959, Side 33
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 27 fengið þá ósk sína uppfyllta að hafa í höndunum gen, sem hægt er að gera tilraunir með utan hinnar lifandi frumu. Má vera, að slíkar tilraunir gefi upplýsingar, sem auka skilning manna á því, hvernig genin endurmótast. Það er rnargt, sem bendir til, að flest enzym bakteríunnar haldi áfram að starfa, eftir að sýking með veirukjarnasýru hefur farið fram. Þau vinna áfram að orkuframleiðslunni og við að búa til byggingarefni, bæði í eggjahvítuefni og kjarnasýrur. Höfuðmun- urin á sýktri frumu og heilbrigðri er sá, að byggingarefni þessi eru ekki notuð til vaxtar og viðhalds þeirrar fyrrnefndu, heldur til þess að framleiða eggjahvítuefni og kjarnasýru veiranna. Fjöldi þeirra veira, sem verða til í hverri bakteríu, áður en hún springur, er nokkuð mismunandi, en oft tvö til þrjú hundruð. Ýmislegt bendir til, að auk þess myndist enzym inni í bakteríunni fyrir tilhlutan veirukjarnasýrunnar og að þetta enzym leysi bakt- eríuvegginn í sundur, svo að bakteríuæturnar komast út. Líklega er um sams konar enzym að ræða og það, sem er í hala bakteríu- ætanna. Sú atburðarás, sem liér hefur verið rakin, tekur um 25 mínútur við hagstæð skilyrði. Samskipti bakteríu og bakteríuæta eru ekki alltaf með þeim hætti, sem lýst hefur verið hér að framan. Menn tóku snemma eftir því, að stundum var hægt að sýkja bakteríugróður með vökva, sem tekinn hafði verið af gróðri af öðrum bakteríustofni, sem var að því er virtist alheilbrigður. Nærtækasta skýringin á þessu fyrir- brigði var sú, að flestar bakteríurnar af síðara stofninum væru ónæmar fyrir þeirri bakteríuætu, sem um var að ræða, en að ann- að slagið breyttust einstakar bakteríu í gróðrinum við stökkbreyt- ingu, þannig að þær yrðu næmar. Það mátti þá hugsa sér, að þess- ar bakteríur sýktust af veirunum og fjölguðu þeim og að þann- ig væri séð íyrir viðhaldi þeirra í gróðrinum. Það kom í ljós við tilraunir, að oft gat þessi skýring ekki staðizt. Gró af bakteríustofni, sem hagaði sér á þennan hátt, voru látin við hitastig, sem vitað var að drap bakteríuæturnar, en ekki gróin. Þvínæst voru þau látin spíra í dauðhreinsuðum næringarvökva, og eftir nokkurn tíma voru komnar bakteríuætur í vökvann, sem hægt var að sýkja með annan gróður. Þetta benti til þess, að veirurnar hefðu verið inni í gróunum, þegar þau voru hituð. Eftirfarandi tilraun var einnig

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.