Náttúrufræðingurinn - 1959, Blaðsíða 53
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
47
3. gr.
Þessum tilgangi leitast íélagið við að ná með því:
a. Að stuðla að vexti og viðgangi Náttúrugripasafnsins.
b. Að beita sér fyrir því, að haldnir séu fræðandi fyrirlestrar um náttúru-
fræðileg efni og farnar séu ferðir til náttúruskoðunar.
c. Að gangast fyrir útgáfu náttúrufræðilegra rita.
4. gr.
Félagar geta allir orðið, livort sem er ltér á landi eða erlendis, með þeim
skilyrðum, er hér greinir:
a. Ársfélagar, þeir, sem greiða 50,00 kr. í félagssjóð árlega.
b. Ævifélagar, þeir, sem greiða 1000,00 kr. í félagssjóð í eitt skipti fyrir öll.
c. Heiðursfélagar og kjörfélagar, þeir, sem kjörnir eru á aðalfundi eftir
tillögum stjórnarinnar.
5. gr.
Félagsgjald sitt skal hver nýr félagsmaður greiða við inngöngu í félagið. Ann-
ars skal árgjaldið greitt fyrir lok marzmánaðar ár hvert.
6. gr.
Fimm manna stjórn sér um framkvæmdir félagsins og annast unt öll málefni
þess. Hver stjórnarmaður er kosinn til tveggja ára í senn. Formaður er kosinn
sérstaklega, en stjórnin skiptir sjálf með sér verkum að öðru leyti. Annað árið
ganga úr stjórninni formaður og tveir aðrir stjórnarmenn, en hitt árið tveir
stjórnarmenn. Kosnir eru tveir varamenn í stjórnina árlega, til eins árs.
7. gr.
Aðalfund félagsins skal halda í febrúar ár livert, og skal dagskrá hans vera
sem hér segir:
a. Skýrt frá helztu framkvæmdum á liðna árinu.
b. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins.
c. Kosin stjórn og tveir endurskoðendur reikninganna með skriflegri kosn-
ingu. Auk þess séu kosnir tveir varamenn í stjórn og einn varaendur-
skoðandi.
d. Önnur mál.
Aðalfund skal boða í Lögbirtingablaðinu með fjögra vikna fyrirvara. Auk
þess skal þeim félagsmönnum, sem búa i Reykjavík og nágrenni, boðaður fund-
urinn skriflega með fárra daga fyrirvara. Aðalfundur er lögmætur, ef löglega
er til hans boðað. Á fundinum ræður einfaldur meirihluti atkvæða úrslitum í