Náttúrufræðingurinn - 1934, Síða 76
186
NÁTTÚRUFR.
Tilkynning.
Náttúrufræðingurinn heilsar með fögnuði því boði póst-
stjórnarinnar, að taka á móti áskrift á blöðum og tímaritum,
þegar útgefendur óska þess. Náttúrufræðingurinn tekur þessu
boði með þökkum, því að það mun létta miklum störfum af út-
gefanda, og spara kostnað. Sá er þó galli á gjöf Njarðar, að
einungis þeir, sem búa á stöðum, sem skip flytja póst til, geta
notað þetta fyrirkomulag, því að það grípur einungis yfir flutn-
ing með skipum. Þó geta menn, sem búa á öðrum stöðum, að
sjálfsögðu falið öðrum að taka á móti blaðinu fyrir sig og koma
því áleiðis.
Vegna þess sparnaðar, sem þetta fyrirkomulag hefir í för
með sér, geta þeir, sem strax panta Náttúrufræðinginn hjá ein-
hverri póststofu, sem hefir afgreiðslusamband við skip, fengið
ritið fyrir kr. 5,00 á ári, en fyrir aðra verður verðið því miður
að vera kr. 6,00 framvegis, eins og það hefir verið hingað til.
Þeir, sem hafa aðstöðu til þess að fá Náttúrufræðinginn eftir-
leiðis fyrir aðeins 5 kr., geta því sagt ritinu upp, þar sem þeir
hafa áður keypt það, hvort sem það var beint frá afgreiðslunni
eða frá útsölumönnum, og um leið pantað á þeirri póststofu, þar
sem þeir annað hvort taka á móti því sjálfir eða fela öðrum það.
Á. F.
Leiðrétting.
í síðasta hefti Náttúrufræðingsins er grein eftir Steindór
Steindórsson kennara, Nýjar íslenzkar plöntur (bls. 51). Steindór
hefir leitt athygli mína að því, að á bls. 54 hefir lýsingin á safa-
störinni (Carex diandra) alveg fallið niður, en aðeins stærðin er
tilgreind. Lýsingin á að vera þannig:
Stráin þéttstæð, sljó-þrístrend eða alveg sívöl neðst, hvass-
strendari og snörp efst. Blöðin mjó, flöt, styttri en stráið. Smá-
öxin aflöng eða egglaga, stilklaus, þéttstæð, í allstóru, brúnleitu
samaxi. Axhlífarnar egglaga, stuttyddar, ljós-móleitar með Ijós-
um himnufaldi, lítið eitt styttri en hulstrin. Hulstrin egglaga,
gljáandi, brún, taugalaus eða með mjög óglöggum taugum neðst.
Trjónan löng, smátennt efst, með grunnri sýlingu. All-stórvaxin
stör, ca. 40 cm. á hæð, vex í mýrum.
Eg bið lesendur ritsins, en þó einkum höfund greinarinnar vel-
virðingar á þessari villu. Á. F.