Náttúrufræðingurinn - 1937, Qupperneq 5
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 113
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiimimiiimiiimiiiiiimimiiniiiimmmiiimiiiiiiiimmiiimiiiiiiiiimimmiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
Hreyíingar plantnanna.
Fljótt á litið virðast plönturnar algerlega jarðbundnar og
hreyfingarlausar. En við nánari athugun sést brátt, að svo er
ekki í raun og veru. Plönturnar hreyfa sig, þótt minna beri á því
en hjá dýrunum. Má skipta hreyfingum plantnanna í tvo aðal-
flokka eftir eðli þeirra, sem sé eðlishreyfingar og lífshreyfingar.
I. Eðlishreyf.'ngar.
Til þessa flokks heyra hreyfingar, sem ekki beinlínis orsak-
ast af lífsstarfi plantnanna. Geta þær komið fram bæði hjá dauð-
um og lifandi plöntum. Þegar dauðir plöntuhlutar þrútna ójafnt
út af vökva eða þorna misfljótt, þá kemur oft fram hreyfing.
Körfur þistilsins opnast í þurrviðri og lokast í votviðri. Líkt gild-
ir um gró elftinganna. í röku veðri vefjast gróþræðirnir utan um
gróið, en í þurki rakna þræðirnir upp og teygja úr sér. Oft hafa
þessar hreyfingar mikla þýðingu við dreifing fræja. Ýms ald-
in opnast skyndilega og fræin þeytast burtu frá plöntunni. Stafar
þetta af misjafnri þenslu í aldinunum. Ytra borðið vex fljótar en
innra borðið og kemur því fram vefjaþensla, er sprengir aldinið
að lokum. Ýmsar belgjurtir, blágresi o. fl. notfæra sér vefjaþenslu
til þess að dreifa fræjunum.
II. Lífshreyfingar.
Þær geta verið tvennskonar. 1 fyrsta lagi geta sumar plönt-
ur flutt sig úr einum stað í annan, og í öðru lagi hreyfa jarðfast-
ar plöntur sig á ýmsan hátt.
a. Gró þörunga og sveppa, kynfrumur, bakteríur o. fl. geta
hreyft sig úr stað. Nota þessar smáverur oft örsmáa þræði, bif-
hár, sem hreyfitæki og synda með þeim. Sumar, t. d. kísilþörung-
ar, skríða áfram. Margskonar skilyrði hafa áhrif á hreyfingarn-
ar. T. d. eru rauðar brennisteinsbakteríur Ijósnæmar. Skíni dauft
ljós á þær frá einni hlið, leita þær til ljóssins, en sé birtan mikil,
forðast þær hana. Sumar tegundir geta aðeins hreyft sig úr
myrkrinu til ljóssins, en komast ekki frá því aftur. Ljósið getur
þannig orðið hrein og bein gildra fyrir þær. Efnanæmi er líka til
hjá sjálfhreyfilegum plöntum. Ákveðin efni hæna þær að sér, en
aftur á móti forðast þær önnur. Góð næringarefni og jafnvel sumar
8