Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1937, Síða 46

Náttúrufræðingurinn - 1937, Síða 46
154 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN iiiiiiiiii MiiiiuiMi iiiMiiii iiiiiiin ..... þens.t hann út, unz hann springur. í 36 km. hæð er loftþrýstingin aðeins um 1.5 mm, og má þá ætla, að rúmtak belgsins sé orðið 50 sinnum meira heldur en þegar hann var látinn laus. — Þegar belgurinn spri'ngur, falla mælitækin til jarðar, en til þess að þau falli ósködduð niður er fest við þau lítil fallhlíf, sem þenst út og dregur úr fallhraðanum. — Þessa aðferð er helzt hægt að nota á meginlandinu, þar sem þéttbýlt er, svo miklar líkur séu til þess að tækin finnist. Þá er ein aðferðin að hafa taug í belgjunum og draga þá niður aftur. Ennfremur má nota flugdreka, nokkru stærri en þá, sem drengir hafa oft að leikfangi. En með þessum síðastnefndu áhöldum er varla hægt að kanna loftið í meira en 2—3 km. hæð. Flugvélar hafa á siðari árum verið mjög notaðar til loftrann- sókna og komast þær greiðlega í 5—8 km. hæð, en mest í 13 km. Þá eru flugkúlurnar, sem við Pickard eru kenndar, og hafa kom- izt í h. u. b. 23 km. hæð. Það hafa menn komizt hæst í loft upp. — Loks er svo á síðustu árum íarið að nota sjálfvirkar litlar loft- skeytastöðvar í sambandi við mælingatækin í mannlausum loft- belgjum. Senditækið gefur frá sér merki í ákveðinni röð, sem gefa til kynna þrýstingu, hita og hraða loftsins á meðan belgurinn svífur hærra og hærra upp í loftið. Merkin má heyra á venjuleg viðtæki og skrifa þau upp jafnharðan. Þá gerir ekkert til þótt belgurinn eða áhöldin finnist ekki aftur, mælingarnar fást samt sem áður. Þetta tæki, sem gert er af miklu hugviti og snilli, er kennt við rússneskan mann, Moltchanof að nafni. Hollenzki veður- fræðingurinn Cannegieter hafði nokkur af þessum tækjum með sér út hingað sumarið 1933, og voru þau send upp hjá Flugskál- anum í Vatnsmýrinni síðustu dagana í júlí, og heyrðust skeytin úr allt að 20 km. hæð stundum. Með öllum þessum mælinga-aðferðum hefir smámsaman feng- izt gleggri og gleggri hugmynd um hitafar, þrýstingu og loft- strauma allt upp í 35 km. hæð. Fyrst lengi vel sýndu mælingar sífallandi hita eftir því sem hærra kom, og lá þá nærri að ætla, að þannig héldi áfram, unz komið væri niður í allsherjar frost- mark — 273 st., sem er sá mesti kuldi, sem hugsanlegt er að til sé; og hingað til hefir ekki tekizt að framleiða með vélum meira en ca. 270 st. frost. En rétt eftir síðustu aldamót tókst frönskum veðurfræðingi, Teisserence de Bort, að koma flugbelgjum með rannsóknatækj- um í meira en 10 þús. metra hæð hvað eftir annað, og þá kom í
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.