Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1937, Page 60

Náttúrufræðingurinn - 1937, Page 60
168 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN aimimiiimmimimimmmmmiiimiimmmmmimmmiimimiiiiiiiimimmiiiiiiiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiimiiiiMimiiiiiimit um að tala þeirra plöntutegunda, sem rjúpan nærist á, mundi hækka mikið, ef rannsóknunum yrði haldið áfram, einkum ef þær næðu til mismunandi landshluta. Rjúpan er svo mikill nytjafugl, að um gagnsemi slíkra rannsókna verður ekki deilt. Vegna hinna fábreyttu náttúruauðæfa lands vors, ætti það að vera oss kapps- mál, að geta hagnýtt oss auðsuppsprettur landsins sem bezt. — Enda þótt rjúpnaveiðin hafi ekki mikla þýðingu fyrir þjóðarbú- skapinn í heild sinni, er hún þó oft og tíðum til verulegs hagnaðar, bæði fyrir þá sem veiðina stunda og eins þjóðina sem heild. En til þess að geta hagnýtt oss íslenzka rjúpnastofninn á sem beztan en þó skynsamlegastan hátt, verðum við að þekkja lifnaðarhætti rjúpunnar til hlítar. Traust og haldgóð þekking á lifnaðarháttum fuglanna, nytsemi þeirra og skaðsemi, er t. d. eini heilbrigði grund- völlurinn, sem hægt er að byggja skynsamlega friðunarlöggjöf á. Eins og kunnugt er, er rjúpnastofninn hér á landi, eins og víða annars staðar, háður miklum sveiflum. Sum árin er rjúpnamergð- in mjög mikil, en þess á milli sést varla rjúpa. Orsakir þessa fyrir- brigðis vita menn ekki með vissu. Má þó telja víst, að farsóttir séu oft orsök rjúpnaleysistímabila. Hér skal þó ekki farið nánar út í þetta atriði, en aðeins bent á það, að rannsóknir á lifnaðar- háttum rjúpunnar eru öruggasta leiðin, til þess að grafast fyrir orsakir slíkra fyrirbrigða, og eins til þess að finna leiðir til að koma í veg fyrir tjón, sem af þeim leiðir. Línur þessar ættu að nægja til að sýna fram á, að vísinda- legar rannsóknir á íslenzka rjúpnastofninum þurfa og verða að fara fram í framtíðinni. Athuganir þær á fæðunni, sem hér birt- ast, ber aðeins að skoða sem líftilfjörlegan lið í því starfi. Finnur Guömundsson.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.