Náttúrufræðingurinn - 1937, Qupperneq 61
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 169
iiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiiinimmmnniiiimmmiiiiiiimiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiuHiiHiiuiiimnimiiiiiiiiiii
Stærsta tré jarðar
(Sequoia gigantea)
Eftir Bernt Lynge.
Árið 1848 gerðu Bandaríki Norður-Ameríku góð kaup. Þá
keyptu þau Kaliforníu að Mexikó fyrir 15 milljónir dollara. Enda
munu Mexikómenn ekki hafa ráðið verðinu eins og þá stóð á.
Landið reyndist vera furðu auðugt. Þar fundust gullnámur, og
þangað streymdu gullleitendur og ótal æfintýramanna. Brátt bár-
ust þaðan sögur um hina furðulegustu hluti, er þar væri að finna,
og meðal þeirra voru sögur um undratré eitt, sem yxi í Kaliforníu
og væri meira að vexti og furðulegra en öll önnur tré jarðarinnar.
Þótt ýmsar æfintýrasagnirnar reyndust miður sannar, þá voru
þó sagnirnar af tré þessu minna ýktar, en margir munu hafa
hugsað í fyrstu. Skal nú skýrt nokkru gjör frá því.
Svo er talið, að hvítir menn hafi fyrst litið risafuruna árið
1850. Ekki vita menn þó með vissu, hrver hafi hana fyrstur litið,
en einn hinna fyrstu var grasasafnari, er sendar var þangað frá
verzlunarhúsinu Yeitch í Exeter í Englandi. Hann teiknaði tréð
og safnaði af því blöðum, könglum og viðarsýnishornum, er hann
sendi til grasafræðingsins Lindley, er gaf trénu nafn og kallaði
það Wellingtonia gigantea. Brátt kom það í Ijós, að tréð var af
annari ættkvísl, er Sequoia heitir, og lýst hafði verið þá fyrir
skömmu.
Nafnið Sequoia er leitt af nafni Indíána eins, er Sequoyah hét.
Hann var óvanalega gáfaður maður, og er þekktur fyrir það meðal
annars, að hann samdi stafrof handa þjóðflokki sínum. Enskir
grasafræðingar vildu nefna tréð S. Wellingtoniana, en amerískir
S. Washingtoniana, er tréð þannig kennt við þjóðhetjur beggja
ríkjanna. Hér er fylgt hinni hlutlausu lausn málanna, að kalla
það S. gigantea.
Það, sem fyrst vakti athygli manna á tré þessu var stærð
þess. Það hlaut brátt alþýðunafnið „mammúttréð“, eða aðeins
„stóra tréð“ (the big tree). Ber það slíkt nafn með rentu, því að
tréð er fullra 100 metra hátt og stofn þess 10 metrar í þvermál
við rótina. Sé það borið saman við ýmsar stórbyggingar gamla
heimsins, þá kemur í ljós, að það er litlu lægra en pýramídarnir
egypsku og jafnhátt turni Péturskirkjunnar í Róm. Hinir stærstu