Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1937, Page 77

Náttúrufræðingurinn - 1937, Page 77
NATTURUFRÆÐINGURINN 183 iiiiiiiiiifiiiiiiiiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiiiimiimmiiiimiiiimmKiimmiiiiiiiiimiiimiiiiii'iiiiimtimiiiiiiiiimmiiimiiiiiiimiiiiiii Gísli Gestsson fot. Friggjargras. Við, sem búum norður í hafi við langa vetur og stutt og köld sumur, lát- um hugann einatt reika til heitari landa með sífelldum sumrum og hávöxn- um frumskógum, þar sem paradísarfuglarnir sitja í liminu og orchideurnar standa í blóma allan ársins hring. — Hér vaxa engir frumskógar og para- dísarfuglarnir væru dauðadæmdir, ef þeir væru fluttir hingað, en þótt fáir geri sér það ljóst, þá spretta orchideur á okkar kalda landi. Af ættinni Orchidacæ, sem er stærsta ættin af einkímblöðungum, vaxa aðeins átta teg- undir á íslandi, og þótt þær séu óásjálegar, samanborið við hina suðrænu ættingja sina, þá eru sumar þeirra meðal fegurstu jurta, sem hér spretta, svo sem brönugrasið og ástag-rasið. Algengasta plantan hér á landi af þessari ætt er þó friggjargrasið (Habenaria hyperborea). Það er frekar lítil planta með gulhvítum blómum og sívölum forðarótum, nægjusöm planta, sem gerir litlar kröfur til jarðvegs og veðurfars, eins og þeim hentar bezt, sem eiga að dafna norður við heimskautsbaug. — Myndin, sem tekin er í júlílok 1937, er af friggjargrasi í fullum blóma. G. G.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.