Náttúrufræðingurinn - 1938, Blaðsíða 16
10 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
iiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiimmiimiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiMiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiimii
7. mynd. J. Á. 1937
Jarðlög- í Brimlárhöfða. Þau eru merkt á myndinni með sömu
bókstöfum og í textanum.
Astarte montagui f. typica?, Dillwyn.
A. montagui var. striata, Leach.
A. montagui var. Warhami, Hancock.
A. borealis f. typica. Chemn.
A. borealis var. placenta, Mörch.
Saxicava arctica, Linné.
Þó jökultoddan hafi ekki fundizt í þessu lagi, bera þó hinar
fundnu tegundir greinilega með sér kuldasvipinn. Afbrigðið War-
hami af astarte-tegundinni er ekki talið núlifandi við strendur
landsins, en er fyrst algengt við Austur-Grænland. Og striata-
afbrigðið af sömu tegund er nú á dögum fágætt við vesturströnd-
ina, en við norður- og austurströndina, í kalda sjónum, er það
talið algengara en aðaltegundin (f. typica) (10). í skeljalaginu í
Brimlárhöfða eru það einkum þessi tvö afbrigði, sem fundizt
hafa, og er jafnvel ekki alveg víst, hvort aðaltegundin er meðal
þeirra, sem hefir verið safnað þaðan. Auk þess er ekkert af dýr-
um þessa jarðlags suðrænar eða hlýsjávartegundir.
í Brimlárhöfða heppnaðist mér ekki að finna ísrákir í yfir-
borði basaltsins, sem molabergið hvílir á. Út frá jarðlagaskipun