Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1938, Síða 19

Náttúrufræðingurinn - 1938, Síða 19
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 13 iimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiimiiiiiiimiiiiiimiiiiiiiimimiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiii undanskildar eru þær plöntur, sem ræktaðar hafa verið á síðasta mannsaldri á nokkrum stöðum á landinu. Ef til vill finnst sum- um það álitamál, hvort þessi 9 furufrjó, sem fundin eru í jarð- laginu í Brimlárhöfða, sé nokkur sönnun þess, að tegundin hafi vaxið hér á landi, þegar lagið var að myndast. Er hugsanlegt að frjóin hafi borizt þangað frá nærliggjandi löndum? Eflaust geta furufrjó borizt langar leiðir í lofti. En þeim mun lengra, sem þau berast, þeim mun dreifðara hljóta þau að falla. Nú hagar svo til, að sýnishornin, sem þessi furufrjókorn eru fundin í, eru öll tek- in, eins og áður er sagt, úr sama lárétta laginu og aðeins með 5—10 m millibili. Væru frjóin svifin langar leiðir að (frá nær- liggjandi löndum), virðist fráleitt að ætla, að þau hefðu fallið jafnþétt og raun ber vitni um. Vér verðum því að telja, að hér sé um að ræða ótvíræða sönnun þess, að furur hafi vaxið í landinu á jökultíma. En mikil breyting til hins betra hefir hlotið að verða á veðráttu landsins frá því hinar norrænu sædýrategundir, úr jarðlagi D, lifðu við strendurnar og þangað til furan (og elrir- inn?) klæddu hlíðarnar. Þessi veðurfarsbreyting samsvarar að öllum líkindum þeirri, sem lesin verður úr lögum Búlandshöfða. 6. BakkaJcotsbrúnir. Mjög mikilsverðar eru rannsóknir Jakobs Líndals á Bakka- kotsbrúnum í Víðidal, og hann hefir skýrt frá áður í þessu tímariti (11). Líndal fann í þessum bökkum blaðför og leifar plantna, sem hann hefir sannað, að séu frá jökultíma. Liggja leirsteinsmyndanirnar inniklemmdar á milli basaltlaga með greinilega ísrákuðu yfirborði. Meðal þeirra plantna, sem ákvarðaðar hafa verið frá þessum stað, eru tegund- ir, sem ekki lifa nú á tímum á landinu, og bera vott um hlýrra loftslag og heppilegri vaxtarskilyrði en gróður landsins hefir nú við að búa.1) 7. Elliðaárvogur. f svonefndum Háubökkum við Elliðaárvog fann dr. Þorkell Þorkelsson (12) ferskvatnsmyndanir undir ísnúnu grágrýti, en ofan á jökulurð. I þessum myndunum fann hann leif- ar lífrænna vera, bæði plantna og dýra (bjallna). Eftir- 1) Líndal hefir ekki lokið rannsókn sinni á bökkunum, því verður ekki nánar getið þessara tegunda að sinni.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.