Náttúrufræðingurinn - 1938, Page 28
22 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
11111111111II111111 ■ 1111111111111111111111111111 ■ 11111■ 11111111|11111111111111|11|11|11111|111111|||III1111111|11111111II1111IIIIIlII1111111IIIIIIIIIIIIII■ II1111
Mynd 1. Jarðfræðikort af nágrenni Demnievatns. Sýnir 3 mismunandi forn-
grýtismyndanir: 1 er neðsta og þykkasta myndunin (aðallega granít), sem Harð-
angursvíddin er mynduð úr. Ofan á henni hvíla svo 2 (fyllit) og allra efst 3
(Kristallínskt flöguberg) og mynda fjalllendið undir Harðangursjökli.
(H. Rosendahl).
upp af botni Harðangursfjarðar. Hann skerst inn í hálendið að
vestan, en til beggja hliða og fyrir botni eru þverhníptar hamra-
hlíðar. Niðri í dalnum er samt furðumikil byggð, því að þar er
veðursæld mikil og góð skilyrði fyrir aldinrækt, eins og annars
staðar í Harðangri. Á leið sinni ofan Simadalinn hafa jökulhlaupin
æfinlega valdið miklu tjóni á ökrum, aldingörðum, vegum og öðr-