Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1938, Side 33

Náttúrufræðingurinn - 1938, Side 33
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 27 iiimiiiiimiiiiimmmiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiinniiimiimmimimimmiiiimiimimmimiiiiimiiiimiiiimmiiimmimim Skýrsla þeirra* er að mestu heimild mín um staðháttu og hlaupið sjálft. Hagavatn fyllir dæld þá, sem takmarkast af Fagradalsfjalli að landsunnan, hraundyngjunni Lanibahrauni að útsunnan og vestan, Langjökli sjálfum með Hagafjalli að norðan, og að austan af skriðjökli einum, sem gengur niður frá meginjöklinum ofan að Fagradalsfjalli og lokar þannig fyrir skarðið, sem þar væri annars á milli. Pessum skriðjökli og Hagavatni svipar því ekki lítið til Rembesdalsskákarinnar og Demmevatns. Yfirborð Hagavatns liggur mjög mishátt, og fyrir hlaupið höfðu kunnugir menn tekið eftir því, að það hækkaði ár frá ári. En Hagavatn hefur sitt hámark eins og Demmevatn, og er það ætlun mín, að því hafi verið náð, þegar vatnið brauzt út undan jöklinum 16. ág. 1929. Hagavatn tæmdist sanit ekki gegnum undirgöng undir jöklinum, eins og Denimevatn gerði. Ef til vill brauzt fyrsta hlaupgusan þannig út, en síðan brotnaði þakið og flaut einnig fram. Pegar þeir félagar, Björn, Tryggvi og Rorsteinn komu á vettvang eftir hlaupið, var eins og skorin hefði verið burt rönd framan af jöklifium, þar sem hann lá upp að Fagradalsfjalli, svo að þar var orðin víð útrás úr vatninu, milli fjallsins og þess sem eftir var af jöklinum. Vatnið hafði fjarað um 9—10 m. Jökulendinn, sem af brotnaði, gizkuðu þeir á, að hefði verið 15—20 m. hár eða þykkur og 300—400 m. breiður. Hagavatn er áætlað um 20—25 km2 að flatarmáli, svo að eftir því hafa um 200 milljónir m3 af vatni flotið fram í hlaupinu. Það er nærri tífallt meira en í Demmevatnshlaupinu. Nærri liggur að ætla, að allra yzt, þ. e. næst Fagradalsfjalli, hafi jökulendinn verið nokkru lægri en þeir 15—20 m., sem þeir félag- ar töldu (meðal)hæð hans, sennilega aðeins 10—13 m. Þar hafi hann því tekið að lyftast, þegar vatnið náði hámarkinu; þannig hafi útstreymið byrjað — fyrst undir jökulinn, en síðan hafi rásin víkk- að, með því að flaumurinn bæði sprengdi þakið af og braut úr ís- veggnum til annarar hliðarinnar. Farvegurinn, sem þannig mynd- aðist úr vatninu, var um 50 m. breiður. Hann Iá austur með norð- urhlíð Fagradalsfjalls, og norðan að honum var brotsárið í skrið- jöklinum lóðréttur íshamar, 300 m. langur og 10—20 m. hár. Tvisvar áður hafa orðið hlaup úr Hagavatni í manna minnum. Fyrst árið 1884 og svo 1902, bæði(?) snemma í septembermánuði. * Morgunblaðið 28. ágúst 1929.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.