Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1938, Qupperneq 38

Náttúrufræðingurinn - 1938, Qupperneq 38
32 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN iiiiiiiiiimiiiiiimimiiiiiimiiiiiiiiiimimiiimiimiiimimimimmiimmimmiiimimiiiiiiiiiiiiiiimmiimmiiiiiiimiiiiiimiii Af því, sem fyr er sagt, er augljóst, að bergundirlagi Skeiðarár- jökuls hallar ekki að Grænalóni. En ég tek dýpra í árinni. Ég tel sennilegt, að austur úr vatnsstæði Grænalóns taki við brekka niður undir jökulinn, í líkingu við það sem mynd 4 sýnir. Eftir því sem vatnsflöturinn hækkar og vatnið dýpkar, flýtur upp meira og meira af jökulröndinni. Fyrst yzta röndin, sem er þynnst, og síðan smýgur vatnið lengra og lengra inn undir jökulinn. Ef nú hallar inn undir jökulinn, verður það vatn, sem lengst kemst undir hann, dýpra undir vatnsfleti en sjálfur vatnsbotninn. Prýst- ingurinn á því verður að sama skapi meiri, og það getur nú lyft upp þykkara jökli. Þannig — get ég mér til — hefur þykkasta jökulspildan yfir hlauprás Grænalóns lyftzt. Þó að jökulyfirborðið yfir hlauprásinni sé allt að því 300 m. yfir botni Grænalóns, og vatnið aðeins 200 m. djúpt, getur flóðið samt brotizt undir jökulinn, ef undirlagi hans hallar svo inn undir hann, að þar sem jökulfargið er mest, verði jökulgrunnurinn nógu mikið lægra en vatnsbotninn. Hve miklu lægri hann þarf að vera má reikna út. Sjá mynd 4: d er dýpt vatnsins við jökulröndina, h hæð jökuls- ins yfir vatnsbotn, (þ þykkt jökulsins), x stærð sem finna á, hæð- armunur vatnsbotns og jökulgrunns undir hæstu bungu jökulsins. a er eðlisþyngd jökulsins, eðlisþyngd vatns er 1. (d + x) • 1 = (h + x) • a Stærðirnar d og h ætti að vera hægt að mæla nákvæmlega, a verður erfiðara að finna, en mætti þó sennilega komast nálægt því. Pá er x (og þ) auðreiknað.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.